Fara í efni  

Fréttir

Ársreikningur Byggðastofnunar 2014

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2014, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 13. mars 2015.

Hagnaður ársins nam 349,2 milljónum króna.  Eiginfjárhlutfall í lok júní skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 20,2% en var 16,1% í lok árs 2013.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000.  Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni.  Í samræmi við hlutverk sitt vinnur stofnunin að undirbúningi, skipulagi og fjármögnun verkefna og veitingu lána með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra.  Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins. Stofnunin getur einnig tekið þátt í gerð svæðisskipulags samkvæmt skipulagslögum.

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2014

  • Hagnaður ársins nam 349,2 milljónum króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 20,2% en skal að lágmarki vera 8%
  • Hreinar vaxtatekjur voru 399,4 milljónir króna eða 49,1% af vaxtatekjum, samanborið við 437,4 milljónir króna (43,8% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2013.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 387,1 milljónum króna samanborið við 373,6 milljónir árið 2013.
  • Eignir námu 13.917 milljónum króna og hafa lækkað um 955,4 milljónir frá árslokum 2013.  Þar af voru útlán og fullnustueignir 10.822 milljónir.
  • Skuldir námu 11.265 milljónum króna og lækkuðu um 1.304,6 milljónir á árinu.
  • Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 18,8 milljónum króna.

Um ársreikninginn

Hagnaður ársins nam 349,2 milljónum króna.  Skýrist hagnaður tímabilsins fyrst og fremst á lægri framlögum á afskriftarreikning útlána, matsbreytingu hlutabréfa og sölu fullnustueigna. 

Eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar var 20,2% í lok tímabilsins.

Horfur

Eiginfjárstaða stofnunarinnar er sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl fyrirtækja á landsbyggðinni.

Umsóknir um nýjar lánveitingar jukust á árinu 2014 og er gert ráð fyrir áframhaldandi aukningu á lánveitingum á árinu 2015.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is

Hér má nálgast ársreikninginn


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389