Fara í efni  

Fréttir

Ársreikningur Byggðastofnunar 2018

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2018, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 22. mars 2019

Hagnaður ársins nam 113,4 milljónum króna.  Eiginfjárhlutfall í lok árs skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 21,45%.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa.  Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2018

  • Hagnaður ársins nam 113,4 milljónum króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 21,45% en skal að lágmarki vera 8% auk 1,25% sveiflujöfnunarauka og 1,75% verndunarauka, eða samtals 11,0% til 31. desember.  Þann 1. janúar 2019 hækkaði verndunarauki í 2,5% þannig að samanlögð krafa um eiginfjárauka er 11,75% frá 1. janúar 2019.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 467,8 milljónir króna eða 42,6% af vaxtatekjum, samanborið við 426,3 milljónir króna (49,9% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2017.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 520,1 milljónum króna samanborið við 446,3 milljónir árið 2017.
  • Eignir námu 14.886 milljónum króna og hafa hækkað um 1.753 milljónir frá árslokum 2017.  Þar af voru útlán og fullnustueignir 12.461 milljónir samanborið við 10.804 milljónir í árslok 2017.
  • Skuldir námu 11.766 milljónum króna og hækkuðu um 1.640 milljónir á árinu.

Horfur

Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl atvinnulífs á landsbyggðinni.

Fjármálaeftirlitið hefur heimild, samkvæmt 1. og 2. mgr. 86. gr. d laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, til að kveða á um sveiflujöfnunarauka sem er 0-2,5% af áhættugrunni. Í 1. mgr. 86. gr. e, sömu laga er kveðið á um 2,5% verndunarauka. Samkvæmt bréfi frá Fjármálaeftirlitinu verður samanlögð krafa um eiginfjárauka 4,25% þann 15. maí 2019 og 4,50% þann 1. febrúar 2020.

Eins og að ofan greinir er eiginfjárstaða Byggðastofnunar sterk og því mun hún geta uppfyllt þessa eiginfjárkröfu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is

Ársreikningur Byggðastofnunar 2018


 


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389