Fara í efni  

Fréttir

Ársreikningur Byggðastofnunar 2019

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2019, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 20. mars 2020

Hagnaður ársins nam 95,4 milljónum króna.  Eiginfjárhlutfall í lok árs skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 19,25%.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa.  Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2019

  • Hagnaður ársins nam 95,4 milljónum króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 19,25% en skal að lágmarki vera 8% auk 1,75% sveiflujöfnunarauka og 2,5% verndunarauka, eða samtals 12,25%.  Þann 1.febrúar 2020 hækkaði sveiflujöfnunarauki í 2,0% þannig að samanlögð krafa um eiginfjárauka er 12,5% frá 1. febrúar 2020.  Þann 18. mars 2020 ákvað Fjármálastöðuleikanefnd Seðlabanka Íslands að aflétta 2% kröfu um sveiflujöfnunarauka fjármálafyrirtækja.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 509,5 milljónir króna eða 43,5% af vaxtatekjum, samanborið við 467,8 milljónir króna (42,6% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2018.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 551,4 milljónum króna samanborið við 520,1 milljón árið 2018.
  • Eignir námu 16.475 milljónum króna og hafa hækkað um 1.589 milljónir frá árslokum 2018.  Þar af voru útlán og fullnustueignir 13.850 milljónir samanborið við 12.113 milljónir í árslok 2018.
  • Skuldir námu 13.259 milljónum króna og hækkuðu um 1.494 milljónir á árinu.

Horfur

Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl atvinnulífs á landsbyggðinni. 

Byggðastofnun hefur reynt að meta áhrif COVID-19 veirunnar á lánasafn stofnunarinnar en talið er að áhrifin verði mest hjá lántakendum hennar í ferðaþjónustu, en lán til þeirrar greinar nema um 4 milljörðum króna. Stofnunin telur að áhrifin geti haft allt að 500 mkr. neikvæð áhrif á sjóðstreymi á árinu 2020, að því gefnu að ekkert verði greitt af lánum í ferðaþjónustu og allt að 500 mkr. á árinu 2021 og hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu verið gerð grein fyrir því. Áhrifin verða fyrst mest á sjóðstreymi stofnunarinnar en gætu orðið seinna á rekstur og efnahag. Stofnunin er þó vel í stakk búin að mæta þessu áfalli þar sem efnahagur hennar er sterkur og hún hefur næga lántökuheimild.

Þá mun ákvörðun Fjármálastöðuleikanefndar Seðlabanka Íslands um að aflétta 2% kröfu um sveiflujöfnunarauka á fjármálafyrirtæki auðvelda stuðning stofnunarinnar við fyrirtæki sem lenda í vanda.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is

Ársreikningur 2019


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389