Fara í efni  

Fréttir

Ársreikningur Byggðastofnunar 2021

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2021, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 18. mars 2022.

Hagnaður ársins nam 167,3 milljónum króna.  Eiginfjárhlutfall í lok árs skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 18,17%.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa.  Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.  Með breytingum á lögum um Byggðastofnun sem tóku gildi 1. júlí 2021 bættist við hlutverk stofnunarinnar það ákvæði að annast framkvæmd laga um póstþjónustu og hafa eftirlit með póstþjónustu eins og nánar er kveðið á um í lögum um það efni.  Skrifstofa stofnunarinnar er á Sauðárkróki.

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2021

  • Hagnaður ársins nam 167,3 milljónum króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 18,17% en skal að lágmarki vera 8% auk 2,5% verndunarauka, eða samtals 10,50%.  Þann 21. september 2021 ákvað Fjármálastöðuleikanefnd Seðlabanka Íslands að að hækka sveiflujöfnunarauka á fjármálafyrirtæki úr 0% í 2% og tekur ákvörðunin gildi 29. september 2022 og verður þá samanlögð eiginfjárkrafa Byggðastofnunar 12,50%.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 560 milljónir króna eða 35,7% af vaxtatekjum, samanborið við 521 milljón króna (39,3% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2020.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 480 milljónum króna samanborið við 508 milljón árið 2020.
  • Eignir námu 22.049 milljónum króna og hafa hækkað um 1.764 milljónir frá árslokum 2020.  Þar af voru útlán 18.625 milljónir samanborið við 16.835 milljónir í árslok 2020.
  • Skuldir námu 18.728 milljónum króna og hækkuðu um 1.597 milljónir á árinu.

Horfur

Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl atvinnulífs á landsbyggðinni. 

Þó áhrif COVID-19 fari minnkandi gerir stofnunin ráð fyrir því að greiðslugeta viðskiptavina sem heimsfaraldurinn hefur haft mest áhrif á verði áfram takmörkuð sem geti leitt til áframhaldandi frystingar á greiðslum.  Ekki er þó gert ráð fyrir að þær verði jafn umfangsmiklar og áður.  Enn er óvissa um fjölda ferðamanna til Íslands og hvernig bólusetningar ganga fyrir sig í öðrum löndum sem haft getur áhrif á greiðslugetu viðskiptavina.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Arnar Már Elíasson settur forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu arnar@byggdastofnun.is

Ársreikningur Byggðastofnunar 2021

 


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389