Fara í efni  

Fréttir

Ársreikningur Byggðastofnunar 2022

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2022, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 5. apríl 2023.

Hagnaður ársins nam 374,2 milljónum króna.  Eiginfjárhlutfall í lok árs skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 19,72%.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við landshlutasamtök, sveitarfélög og aðra haghafa.  Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.  Þá annast stofnunin framkvæmd laga um póstþjónustu og hefur eftirlit með póstþjónustu eins og nánar er kveðið á um í lögum um það efni.  Skrifstofa stofnunarinnar er á Sauðárkróki.

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2022

  • Hagnaður ársins nam 374,2 milljónum króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 19,72% en skal að lágmarki vera 8%.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 798 milljónir króna eða 34,6% af vaxtatekjum, samanborið við 560 milljón króna (35,7% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2021.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 558 milljónum króna samanborið við 480 milljónir árið 2021.
  • Eignir námu 23.822 milljónum króna og hafa hækkað um 1.73 milljónir frá árslokum 2021.  Þar af voru útlán 19.748 milljónir samanborið við 18.625 milljónir í árslok 2021.
  • Skuldir námu 20.126 milljónum króna og hækkuðu um 1.399 milljónir á árinu.

Horfur

Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl atvinnulífs á landsbyggðinni. 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Arnar Már Elíasson forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu arnar@byggdastofnun.is

Ársreikninginn má nálgast hér


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389