Fara í efni  

Fréttir

Ársskýrsla Brothættra byggða fyrir árið 2025 er komin út

Ársskýrsla um verkefnið Brothættar byggðir fyrir árið 2025 hefur verið gefin út, sjá hér. Í skýrslunni er gerð grein fyrir því helsta sem hefur verið unnið að á árinu í þátttökubyggðarlögunum. Skýrslan byggir að miklu leyti á ársskýrslum verkefnisstjóra í einstökum byggðarlögum, auk samantektarefnis frá fulltrúum Brothættra byggða hjá Byggðastofnun.

 

Virk þátttökubyggðarlög 2025 í grunnverkefni Brothættra byggða

Á árinu 2025 voru fjögur byggðarlög í virkri þátttöku í Brothættum byggðum. Stöðvarfjörður og Dalabyggð voru í lokaáfanga verkefnisins en sveitarstjórnir í þeim byggðarlögum óskuðu eftir framlengingu á verkefnunum og samþykkti stjórn Byggðastofnunar framlengingu verkefnistíma út árið 2026.  Reykhólahreppur var á árinu 2025 á fyrsta þátttökuári í verkefninu og frumkvæðisstyrkjum var úthlutað þar að áliðnu hausti. Þá voru samningar undirritaðir um þátttöku Kaldrananeshrepps sem hóf vegferð sína undir merkjum Brothættra byggða á seinni hluta árs. Fyrsta úthlutun úr frumkvæðissjóði í Kaldrananeshreppi varð þó ekki fyrr en í upphafi árs 2026.

 

Þátttökubyggðarlög í nýju tilraunaverkefni Brothættra byggða II

Tveimur fyrrum þátttökubyggðarlögum í Brothættum byggðum, Raufarhöfn og Öxarfjarðarhéraði,  var boðin þátttaka í sérstöku tilraunaverkefni, Brothættum byggðum II. Verkefnið snýr að því að mæta fyrrum þátttökubyggðarlögum sem enn eru í vörn og reyna að hvetja íbúa samfélaganna til dáða með því m.a. að veita styrki til frumkvæðisverkefna. Verkefnið er áætlað til þriggja ára og hefur farið vel af stað. Fjölmargir íbúar hafa sótt um í frumkvæðissjóði byggðarlaganna tveggja og hlotið styrki til fjölbreyttra verkefna. Ein sameiginleg verkefnisstjórn er starfandi fyrir bæði verkefnin og tveir verkefnisstjórar, einn fyrir hvort svæði, en þeir vinna að tilraunaverkefnunum í mikilli samvinnu. Verkefnistími tilraunaverkefnanna nær til áranna 2025-2027 og er gert ráð fyrir að úthluta styrkjum einu sinni á ári úr frumkvæðissjóðum þessi ár í byggðarlögunum. Byggðastofnun fjármagnar verkefnið.

 

Heildarúthlutun frumkvæðisstyrkja

Á árinu 2025 voru kr. 41.250.000 til ráðstöfunar í frumkvæðissjóðum þátttökubyggðarlaga í grunnverkefninu og við það bættust fjármunir sem ekki höfðu nýst að fullu í eldri frumkvæðisverkefnum. Heildarúthlutun varð því kr. 41.650.000 og var úthlutað til 61 verkefnis. Til viðbótar voru 24.750.000 kr. til ráðstöfunar í tilraunaverkefnunum tveimur og var þeim fjármunum úthlutað til 17 verkefna. Frumkvæðisverkefnin eru fjölbreytt og ná til atvinnu-, menningar- og samfélagsuppbyggingar í þátttökubyggðarlögunum.

Uppfærð verkefnislýsing

Verkefnislýsing Brothættra byggða hefur verið yfirfarin og ný útgáfa var gefin út og birt á vef Byggðastofnunar í desember 2025, sjá hér. Meðal nýjunga varðandi uppfærslu á verklagi má nefna að frá og með árinu 2025 verða íbúakannanir lagðar fyrir í upphafi hvers nýs verkefnis en einnig við lok verkefna, þ.e. þegar Byggðastofnun dregur sig í hlé.

 

 

 

 

 

 

Verkefnið er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar, C.2, og markmið þess er að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Verkefnið byggir á samstarfi Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags, landshlutasamtaka og síðast en ekki síst íbúa hvers þátttökubyggðarlags. Því er einkum ætlað að styðja við frumkvæði og þátttöku íbúa til hagsbóta fyrir samfélagið í víðum skilningi.

 


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389