Fara í efni  

Fréttir

Athugun á stöðu byggðarlaga sem búa við viðvarandi fólksfækkun

Byggðastofnun vinnur nú að verkefni sem tilgreint er í byggðaáætlun 2006-2009 og nefnist ,,Athugun á stöðu byggðarlaga sem búa við viðvarandi fólksfækkun".

Verkefnið er m.a. unnið í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, viðkomandi sveitarfélög og við Háskóla Íslands. Stefnt er að því að kynna niðurstöður í lok þessa árs.

Eitt af verkefnum sem tilgreind eru í byggðaáætlun 2006-2009 nefnist „Athugun á stöðu byggðarlaga sem búa við viðvarandi fólksfækkun". Þar segir m.a.: „Gerð verður athugun á stöðu byggðarlaga sem glímt hafa við viðvarandi fólksfækkun. Styrkleikar þeirra og veikleikar verða metnir og greindir möguleikar til eflingar byggðarlaganna."

Byggðastofnun ber ábyrgð á framkvæmd þessa verkefnis, en vinnur það í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, Impru nýsköpunarmiðstöð, sveitarfélög og ráðuneyti og við Háskóla Íslands.

Skilgreining á „viðvarandi fólksfækkun" er skoðuð annars vegar út frá tímabili og hins vegar hlutfalli fækkunar. Skoðað var 10 ára tímabil, 1996-2006 og einnig tímabilið 2001-2006. Ekki er eingöngu miðað við ákveðna hlutfallstölu, heldur aðstæður metnar á hverju svæði fyrir sig. Atvinnuþróunarfélögin unnu stöðumat á viðkomandi svæðum, út frá völdum þáttum, s.s. atvinnu, þjónustu, menntun o.fl. Landfræðiskor Háskóla Íslands vinnur að þjónustugreiningu svæðanna fyrir Byggðastofnun. Starfsmenn þróunarsviðs hafa undanfarið heimsótt þau sveitarfélög sem um ræðir og talað við sveitarstjórnarmenn um stöðu byggðarlagsins og horfur.

Vinna við verkefnið hófst á haustdögum 2006 og stefnt er að því að niðurstöður verði kynntar í lok þessa árs.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389