Fara í efni  

Fréttir

Auglýst eftir umsóknum um Eyrarrósina

Eyrarrósin, viðurkenning sem veitt er árlega einu afburða menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar á landsbyggðinni, verður afhent í byrjun árs 2011. Af því tilefni er hér með auglýst eftir umsóknum um Eyrarrósina 2011.  Þetta er í sjötta sinn sem Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands standa að þessari viðurkenningu.


UMSÓKNUM SKAL FYLGJA:

Lýsing á verkefninu
Lögð skal fram greinargóð lýsing á verkefninu; umfangi þess, sögu og markmiðum.

Tíma- og verkáætlun
Gera skal grein fyrir stöðu og áætlaðri framvindu verkefnisins og áformum á árinu 2011. Skilyrði er að verkefninu hafi nú þegar verið hleypt af stokkunum.

Upplýsingar um aðstandendur
Lagðar skulu fram ítarlegar upplýsingar um helstu aðila sem að verkefninu standa og grein gerð fyrir þeirra þætti í því.

Fjárhagsáætlun
Tilgreina skal tekjur og gjöld verkefnisins á þessu ári.  Uppgjör ársins 2009 fylgi umsókn.

  • Ef umsókn fylgja ekki ofangreindar upplýsingar verður hún ekki tekin til greina
  • Umsækjendur geta verið m.a. stofnun, safn, tímabundið verkefni eða menningarhátíð
  • Úthlutunarnefnd tilnefnir þrjú verkefni úr hópi umsækjenda um Eyrarrósina 2011
  • Eitt þeirra hlýtur viðurkenninguna, 1.500.000 kr. og verðlaunagrip til eignar
  • Viðurkenningin verður veitt í ársbyrjun 2011 á Bessastöðum
  • Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff forsetafrú
  • Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2010 og verður öllum umsóknum svarað
  • Umsóknir skal senda til Listahátíðar í Reykjavík, pósthólf 88, 121 Reykjavík, merktar „Eyrarrósin“

Nánari upplýsingar fást hjá Listahátíð í Reykjavík í síma 561 2444, artfest@artfest.is 

Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands standa saman að Eyrarrósinni, viðurkenningu sem veitt er árlega einu afburða menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar á landsbyggðinni.

Verðlaunahafar Eyrarrósarinnar frá upphafi eru:
2005 Þjóðlagahátíðin á Siglufirði
2006 LungA, Listahátíð ungs fólks á Austurlandi
2007 Strandagaldur á Hólmavík
2008 Aldrei fór ég suður, rokkhátíð alþýðunnar á Ísafirði
2009 Landnámssetur Íslands, Borgarnesi
2010 Bræðslan á Borgarfirði eystra

Sjá auglýsingu


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389