Fara í efni  

Fréttir

Beinar og óbeinar byggðaaðgerðir og þróun mannfjölda í átta sveitarfélögum: samanburðarrannsókn kynnt á ársfundi Byggðastofnunar

Dagskrá ársfundarins

Við höldum áfram að kynna dagskrá ársfundar Byggðastofnunar sem haldinn verður fimmtudaginn 28. maí nk. í félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri.

Meðal erinda á ársfundinum verður samanburðarrannsókn Ara Klængs Jónssonar, Beinar og óbeinar byggðaaðgerðir og þróun mannfjölda í átta sveitarfélögum en verkefnið er eitt af sex verkefnum sem fengu styrk úr Byggðarannsóknarsjóði árið 2024.

Verkefnið snýr að því að greina íbúaþróun í átta sveitarfélögum og setja hana í samhengi við uppbyggingu atvinnugreina á svæðunum sem um ræðir og beinar og óbeinar byggðaaðgerðir sem ráðist hefur verið í. Verkefnið varpar ljósi á breytingar á stærð og samsetningu mannfjöldans á hverju svæði fyrir sig með tilliti til lýðfræðibreyta, tekna og menntunarstöðu og þróun þessara breyta yfir fyrirfram skilgreind tímabil og í samanburði við landið í heild sinni. Tilgangur rannsóknarinnar var tvíþættur. Annars vegar sá að varpa ítarlegu ljósi á íbúaþróun yfir langt tímabil á völdum svæðum hringinn í kringum landið og hins vegar að setja þá þróun í samhengi við aðgerðir sem ráðist hefur verið í og ættu að hafa áhrif á samsetningu og stærð mannfjöldans á hverjum stað fyrir sig, með beinum eða óbeinum hætti.

Annar dagskrárliður á ársfundi Byggðastofnunar er veiting styrkja úr Byggðarannsóknasjóði fyrir árið 2026. Tilgangur sjóðsins er að efla byggðarannsóknir og bæta þekkingargrunn fyrir stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum og fer Byggðastofnun með umsýslu sjóðsins.

Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389