Fara í efni  

Fréttir

Betri Bakkafjörður, úthlutun styrkja úr Frumkvæðissjóði 2021

Mynd: ÓÁR.

Nýlega var styrkjum úthlutað úr Frumkvæðissjóði Brothættra byggða í verkefninu Betri Bakkafjörður. Er þetta í þriðja sinn sem fjármagni er veitt úr sjóðnum í byggðalaginu. Alls bárust 14 umsóknir í sjóðinn að þessu sinni og heildarfjárhæð umsókna var 76,5 milljónir króna. Til úthlutunar í ár voru samtals 13,9 m.kr. og var þeim veitt til átta samfélagseflandi verkefna. Þess ber þó að geta að inni í þeirri tölu eru fjármunir sem ekki nýttust að fullu í fyrri verkefnum og komu því til endurúthlutunar nú. Verkefnin sem hlutu styrk að þessu sinni voru mjög fjölbreytt og hafa það öll að markmiði að styrkja innviði Bakkafjarðar, skapa atvinnu og stuðla að sterkari stöðu byggðarlagsins í samræmi við stefnumótun fyrir verkefnið sem samþykkt var á íbúafundi haustið 2019.

Frá því að verkefnið hóf göngu sína árið 2019 hafa samtals 23 verkefni hlotið styrki að upphæð samtals 27,5 m.kr. Auk þess var sérstöku framlagi veitt í þjónustukjarna og gistiheimili að upphæð 9 m.kr. og hefur því samtals 36,5 m.kr. verið veitt til samfélagseflandi verkefna í byggðalaginu undir merkjum Betri Bakkafjarðar frá upphafi. Til viðbótar má nefna að 1,5 m.kr. var úthlutað til verslunar í strjálbýli í tengslum við byggðaáætlun  á árinu 2019.

Yfirlit yfir styrkt verkefni má sjá á heimasíðu Byggðastofnunar hér.

Myndin er tekin við úthlutun styrkja á Bakkafirði 6. maí sl. 

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389