Fréttir
Byggðaáætlun: Fjögur verkefni á sviði almenningssamgangna fá 25 milljónir
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki til almenningssamgangna á milli byggða. Alls bárust átta umsóknir um styrki að fjárhæð tæpar 74 milljónir. Að þessu sinni var 25 milljónum króna úthlutað til fjögurra verkefna.
Um er að ræða aðgerð A.10 á byggðaáætlun, Almenningssamgöngur milli byggða. Markmið með aðgerðinni að styðja við þróun almenningssamgangna milli byggða, m.a. til að tengja við ýmsa sérakstursþjónustu.
Verkefnin sem hljóta styrk eru:
• Almenningssamgöngur á milli Djúpavogs og Egilsstaða
Umsækjandi: Múlaþing. Styrkur: 10 milljónir kr.
Markmið verkefnisins er að koma á reglubundnum almenningssamgöngum milli Egilsstaða og Djúpavogs til að mæta þörfum nemenda frá Djúpavogi sem stunda nám við Menntaskólinn á Egilsstöðum. Um 30 nemendur við ME eru frá Djúpavogi en engar almenningssamgöngur eru í boði milli staðanna yfir vetrartímann.
• Tómstundaakstur í Þingeyjarsveit
Umsækjandi: Þingeyjarsveit. Styrkur: 6 milljónir kr.
Tilgangur verkefnisins er að jafna aðstöðu barna og ungmenna til að taka þátt í tómstundastarfi á vegum sveitarfélagsins eða félagasamtaka innan þess. Ákall um tómstundaakstur hefur aukist þar sem fólk er bundið af vinnu og hefur ekki tök á að skutla börnum, fjölskyldu eða nágrönnum langar vegalengdir í tómstundastarf.
• Brú milli byggða – aðgengi barna að íþróttum
Umsækjandi: Húnabyggð. Styrkur: 5 milljónir kr.
Verkefnið byggir á auknu samstarfi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra á sviði íþrótta, með áherslu á hópíþróttir, og snýr að því að samræma betur framboð íþróttastarfs milli byggðarlaga. Í samstarfi við íþróttafélögin Hvöt á Blönduósi og Tindastól á Sauðárkróki á að samræma æfingatíma, ferðaskipulag og nýtingu aðstöðu þannig að börn og ungmenni hafi góðan aðgang að íþróttastarfi óháð búsetu.
• Bætt tenging innbæjarstrætó Reykjanesbæjar við Landsbyggðarstrætó
Umsækjandi: Reykjanesbær. Styrkur: 4 milljónir kr.
Verkefnið er tilraunaverkefni til eins árs og snýr að því að tengja leiðarkerfi innanbæjarstrætó Reykjanesbæjar við Landsbyggðarstrætó með því að bæta við tveimur morgunferðum á virkum dögum við núverandi leiðarkerfi innanbæjarstrætó. Markmiðið er að koma til móts við íbúa Reykjanesbæjar sem nýta sér Landsbyggðarstrætó vegna náms, íþrótta eða atvinnu eða til að sækja þjónustu af ýmsu tagi.
Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknir og gerði tillögur til ráðherra. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun innviðaráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036.
Frétt af vef Stjórnarráðsins.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

