Fréttir
Byggðalinsan aðstoðar við mat á áhrifum lagafrumvarpa á byggðarlög og búsetufrelsi
Innviðaráðuneytið hefur gefið út leiðbeiningar um hvernig meta skuli áhrif lagafrumvarpa á byggðarlög og frelsi til búsetu. Kjarni leiðbeininganna er svokölluð byggðalinsa, stefnumatsverkfæri sem ætlað er að aðstoða starfsfólk ráðuneyta og stofnana við að greina hvernig stefnumótun, áætlanir og lagafrumvörp geta haft áhrif á búsetuskilyrði og byggðaþróun eftir landsvæðum.
Innviðaráðuneytið fól starfsmönnum Byggðastofnunar að vinna að verkefninu í samstarfi við starfsfólk innviðaráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins. Afrakstur þeirrar vinnu er byggðalinsan, leiðarvísir sem ætlað er að styðja við markvissara og samræmdara mat á áhrifum lagafrumvarpa á byggðarlög og búsetuskilyrði.
Byggðalinsan hjálpar til við að greina áhrif áður en ákvarðanir eru teknar. Með henni er meðal annars lagt mat á hvernig fyrirhugaðar breytingar geta haft áhrif á þjónustu, aðgengi, atvinnu, búsetuskilyrði og þróun einstakra landsvæða. Landfræðileg vídd er þannig felld með markvissari hætti inn í áhrifamat stjórnvalda.
Lög og stjórnvaldsfyrirmæli geta haft ólík áhrif eftir því hvar á landinu fólk býr og fyrirtæki starfa. Breyting sem hefur lítil áhrif á einu landsvæði getur haft veruleg áhrif annars staðar, meðal annars vegna ólíks íbúaþéttleika, vegalengda, aðgengi að þjónustu og atvinnuhátta. Með byggðalinsunni er leitast við að gera slík áhrif sýnileg áður en endanleg ákvörðun er tekin.
Leiðbeiningarnar gefa stjórnvöldum betri forsendur til að leggja mat á bæði bein og óbein áhrif ákvarðana á byggðir landsins. Útgáfa leiðbeininganna er liður í framkvæmd aðgerðar 11 í stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024-2028. Aðgerðin styður við markmið stjórnvalda um búsetufrelsi og að stefnt verði að eins sambærilegri þjónustu og búsetuskilyrðum og kostur er á um allt land.
Leiðbeiningarnar eru ætlaðar ráðuneytum og stofnunum sem vinna að stefnumótun, áætlanagerð og gerð lagafrumvarpa og geta nýst sem hagnýtt verkfæri við undirbúning ákvarðana stjórnvalda.
Leiðbeiningarnar verða einnig birtar á vefsíðunni Vönduð löggjöf þar sem finna má leiðbeiningar, sniðmát og eyðublöð vegna undirbúnings löggjafar. Einnig verða þær kynntar sérstaklega fyrir starfsfólki Stjórnarráðsins sem kemur að vinnu við lagasetningu.
- Leiðbeiningar um mat á áhrifum lagafrumvarpa á byggðarlög
- Umfjöllun um vandaða löggjöf á vef Stjórnarráðsins
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

