Fara í efni  

Fréttir

Byggðastofnun fundar með sveitarstjórnarmönnum og Atvinnuþróunarfélagi Norðurlands Vestra

Samkvæmt lögum um Byggðastofnun er hlutverk hennar að fylgjast með þróun byggðar í landinu og vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni. Stofnunin skipuleggur og vinnur að ráðgjöf við atvinnulífið á landsbyggðinni í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra. Nú í byrjun febrúar fundaði stjórn Byggðastofnunar ásamt starfsmönnum með fulltrúum Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi Vestra, SSNV, en Byggðastofnun og SSNV hafa með sér samning um starf á sviði atvinnu- og byggðaþróunar á starfssvæði SSNV. 

Á fundinum fengu stjórnarmenn í Byggðastofnun upplýsingar um stöðu atvinnulífs á svæðinu auk þess sem rætt var almennt um stoðkerfi atvinnulífsins og hlutverk stofnunarinnar og sveitarfélaga í því.  Atvinnulíf á Norðurlandi Vestra byggist að miklu leiti á frumframleiðslugreinunum landbúnaði og sjávarútvegi en í þeim greinum hefur störfum fækkað mikið. Fæðingarorlofssjóður, Greiðslustofa atvinnuleysistrygginga og Innheimtumiðstöð sekta hafa verið flutt inn á svæðið á síðustu árum en á sama tíma hefur öðrum störfum á vegum hins opinbera fækkað.

Fulltrúar SSNV létu í ljósi áhyggjur af þróun mála en mikil fólksfækkun hefur orðið á Norðurlandi vestra á undanförnum árum og er árið 2011 þar engin undantekning. Sérstakar áhyggjur vekur sú þróun að ungu fólki fækkar hratt sem og börnum á skólaaldri.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389