Fréttir
Byggðastofnun heimsækir sveitarfélögin á Reykjanesi
Byggðastofnun hefur sett sér það markmið að heimsækja sveitarstjórnir allra sveitarfélaga í landsbyggðunum. Markmiðið er að kynna starfsemi stofnunarinnar og þau verkefni sem geta nýst sveitarfélögum við fjölbreyttar aðstæður. Verkefnið hófst á síðasta ári og nú hafa 36 sveitarfélög verið heimsótt.
Síðastliðinn mánudag áttum fulltrúar Byggðastofnunar góða fundi með fulltrúum sveitarfélagsins Voga annars vegar og Suðurnesjabæjar hins vegar í ráðhúsum þeirra.
Á þriðjudag kom stjórn stofnunarinnar saman til stjórnarfundar í Reykjanesbæ. Í tengslum við fundinn átti stjórnin jafnframt fund með bæjarstjórn Reykjanesbæjar og framkvæmdastjóra Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS).
Að fundunum loknum var farið í rútuferð um Reykjanesbæ og Grindavík. Þar nutum þátttakendur góðrar leiðsagnar Vilhjálms Árnasonar bæjarstjóra og Margrétar Ólafar A Sanders stjórnarmanns Byggðastofnunar, sem miðluðu þekkingu sinni á svæðinu, þróun þess og þeim áskorunum og tækifærum sem þar eru fram undan.
Pétur Markan bæjarstjóri Grindavíkur sem ætlaði að hitta hópinn í Grindavík boðaði forföll þar sem sama dag kom út nýtt áhættumat fyrir Grindavík sem opnar enn frekar á möguleika til áframhaldandi búsetu í bænum.
Fjölmörg mikilvæg byggðamál voru rædd í heimsóknunum. Meðal annars var rætt um óstaðbundin störf, vinnustaðaklasa, þjónustu- og atvinnusókn, lánveitingar, átthagafjárfesta, almenningssamgöngur, mælaborð Byggðastofnunar, samsetning íbúa og áhrif nálægðarinnar við höfuðborgarsvæðið.
Byggðastofnun heldur áfram á þessari vegferð um landið. Næsti stjórnarfundur Byggðastofnunar verður haldinn á Patreksfirði þann 20. október.

Hópurinn í Grindavík
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember