Fréttir
Byggðastofnun lækkar óverðtryggða vexti landbúnaðarlána
Stjórn Byggðastofnunar tók þá ákvörðun 18. október sl. að lækka álag á óverðtryggða vexti landbúnaðarlána um 1 prósentustig þannig að vaxtakjör slíkra lána verða REIBOR+2,5%. Þá var ákveðið að lækka álag á óverðtryggða vexti lána til kynslóðaskipta í landbúnaði, lán sem falla undir COSME ábyrgðasamkomulag Evrópska fjárfestingasjóðsins, um 1,3 prósentustig og verða kjörin REIBOR+2,0%. Breytingarnar taka gildi 1. nóvember.
Í ljósi sérstaklega erfiðrar stöðu í landbúnaði um þessar mundir vegna hækkandi fjármagnskostnaðar og aðfangaverðs tók stjórn Byggðastofnunar ákvörðun um að fara í þessa aðgerð til að mæta bráðum vanda í greininni. Þá hefur núverandi umhverfi gert endurnýjun í greininni erfitt um vik og hugsanlegt að bújörðum fari ört fækkandi á næstu misserum ef umhverfið helst óbreytt.
Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs í landsbyggðunum. Í samræmi við hlutverk sitt vinnur stofnunin að undirbúningi, skipulagi og fjármögnun verkefna og veitingu lána með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi.
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember