Fara í efni  

Fréttir

27 milljónir til tólf vinnustaðaklasa á landsbyggðinni

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur úthlutað rúmum 27 milljónum kr. í styrki til 14 verkefna til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Styrkirnir eru veittir á grundvelli byggðaáætlunar (aðgerð B.7 – Óstaðbundin störf). Markmiðið er að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni. Þetta er í annað sinn sem styrkir eru veittir sérstaklega til að efla vinnustaðaklasa á landsbyggðinni, en í mars sl. úthlutaði ráðherra fimmtíu milljónum til 26 vinnustaðaklasa.

Vinnustaðaklasi er skilgreindur sem skipulagt og samnýtt vinnurými þar sem fjölbreytt vinnuaðstaða stendur til boða fyrir fleiri en einn vinnustað eða starfsstöðvar vinnustaða. Styrkhæfir voru aðilar sem reka vinnustaðaklasa utan höfuðborgarsvæðisins.

Styrkir skiptist í ólíka flokka eftir svæðum, íbúafjölda og eftir því hversu rótgróin starfsemin er. Í forgangi voru minni staðir þar sem atvinnulíf er einhæft, svæði sem hafa orðið fyrir verulegum áföllum í atvinnulífi eða svæði á fámennum vinnusóknarsvæðum.

Yfirlit yfir styrkþega

Eftirtalin verkefni hlutu styrk til að byggja upp vinnustaðaklasa og styðja við sjálfbærni þeirra.

Forgangsröðun a. Ný uppbygging á forgangssvæði:

  • Samvinnuhús á Stöðvarfirði. Umsækjandi: Sköpunarmiðstöðin. Styrkur: 2.462.313 kr.
  • Kaupvangur á Vopnafirði. Umsækjandi: Vopnafjarðarhreppur. Styrkur: 4.000.000 kr.
  • Golan í Grindavík. Umsækjandi: Grindavíkurbær. Styrkur: 4.000.000 kr.

Forgangsröðun b. Fjölgun plássa á forgangssvæði:

  • Kaupvangur á Vopnafirði. Umsækjandi: Vopnafjarðarhreppur. Styrkur: 624.000 kr.

Forgangsröðun c. Rekstrarstyrkur á forgangssvæði:

  • Þróunarsetrið á Hólmavík. Umsækjandi: Strandabyggð. Styrkur: 1.000.000 kr.
  • Samvinnurými á Stöðvarfirði. Umsækjandi: Sköpunarmiðstöðin. Styrkur: 1.000.000 kr.
  • Skuldarhalli á Vopnafirði. Umsækjandi: Skuldarhalli ehf. Styrkur: 1.000.000 kr.

Forgangsröðun d. Ný uppbygging á miðlungssvæði:

  • Verbúðin í Bolungarvík. Umsækjandi: Rörás ehf. Styrkur: 4.000.000 kr.
  • Vinnustaðaklasinn í Hofsós frystihúsi. Umsækjandi: Hofsós frystihús ehf.  Styrkur: 4.000.000 kr.

Forgangsröðun e. Framlag vegna nýrra plássa gegn langtímaskuldbindingu:

  • Engar umsóknir bárust vegna framlaga vegna nýrra plássa í þessari forgangsröðun.

Forgangsröðun f. Rekstrarstuðningur á miðlungssvæðum:

  • Gamli bankinn á Ísafirði. Umsækjandi: Fljót ehf. Styrkur: 1.000.000 kr.
  • Samvinnurými Röst á Hellissandi. Umsækjandi: Snæfellsbær. Styrkur: 1.000.000 kr.

Forgangsröðun g. Einskiptisframlag vegna nýrrar starfsemi á vinnusóknarsvæðum sem telja fleiri en 10.000 manns:

  • Ein umsókn barst sem ekki var samþykkt.

Forgangsröðun g. Rekstrarstuðningur á vinnusóknarsvæðum sem telja fleiri en 10.000 manns:

  • Fjölheimar á Selfossi. Umsækjandi: Háskólafélag Suðurlands á Selfossi. Styrkur: 1.000.000 kr.
  • Konvin-setrið að Ásbrú í Reykjanesbæ. Umsækjandi: Konvin ehf. Styrkur: 1.000.000 kr.
  • Rýmið á Akranesi. Umsækjandi: Muninn kvikmyndagerð ehf. Styrkur: 1.000.000 kr.

Umsóknarfrestur var til 23. september sl. og alls bárust 19 umsóknir um styrki að upphæð tæpum 69 milljónum. Þriggja manna valnefnd var falið að meta allar umsóknir og gerði tillögu til ráðherra um úthlutun styrkja. Fjallað er um hlutverk og skipan valnefndar og mat umsókna í reglum um úthlutun innviðaráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036.

Frétt af vef innviðaráðuneytisins


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389