Fréttir
Aukning kostnaðar vegna alþjónustu í póstþjónustu einkum komin til vegna fækkunar bréfa
Byggðastofnun hefur birt ákvörðun nr. Á-1/2026 um greiðslu til handa Íslandspósti ohf. vegna veittrar alþjónustu í póstþjónustu árið 2025. Umsókn Íslandspósts er birt í heild sem fylgiskjal með ákvörðuninni.
Ísland er strjálbýlasta land í Evrópu með um 4 íbúa á ferkílómetra og greiðsla ríkissjóðs vegna alþjónustu í póstþjónustu er alfarið komin til vegna svæða utan höfuðborgarsvæðisins þar sem þéttleiki byggðar er enn minni.
Framlag ríkissjóðs hefur farið hækkandi síðustu ár, einkum vegna mikils samdráttar í bréfasendingum en athygli vekur að greitt er hærra framlag t.d. í Noregi miðað við höfðatölu þótt Ísland sé töluvert strjálbýlla.
Samkvæmt lögum um póstþjónustu nr. 98/2019 getur alþjónustuveitandi, telji hann að alþjónusta sem honum er skylt að veita hafi í för með sér hreinan kostnað, sótt um til Byggðastofnunar að honum verði með fjárframlögum tryggt sanngjarnt endurgjald fyrir þá starfsemi sem um ræðir.
Eins og fram kemur í ákvörðuninni er langstærstur hluti þess kostnaðar sem greindur er í umsókn Íslandspósts til kominn vegna þjónustu við bréf annarsstaðar en á höfuðborgarsvæðinu, eða um 80% Kostnaður vegna pakkaþjónustu hefur hækkað lítillega.
|
A) Hreinn kostnaður: |
|
|
i. Vegna þjónustu með landpóstum, |
576.893.105 |
|
- Vegna bréfa |
467.799.377 |
|
- Vegna pakka |
109.093.729 |
|
ii. Vegna bréfa þjónustu á óvirkum markaðssvæðum |
158.537.684 |
|
iii. Vegna dreifingar á blindrasendingum, |
20.934.592 |
|
iv. Ávöxtunarkrafa |
38.089.197 |
|
B) Eftirfarandi liðir koma til frádráttar: |
|
|
i. Markaðsávinningur, |
37.701.283 |
|
Til greiðslu: |
756.753.296 |
Samkvæmt lögum um póstþjónustu ber alþjónustuveitanda að reka dreifikerfi sem tryggir póstþjónustu vegna bréfa allt að 2 kg, pakka allt að 10 kg innanlands en 20 kg milli landa og sendinga fyrir blinda og sjónskerta allt að 2 kg. Miða skal dreifingu innan alþjónustu við tvo daga í viku til einstaklinga sem hafa fasta búsetu, sbr. lög um lögheimili og aðsetur. Á sama hátt skal bera út póstsendingar til lögaðila sem hafa fasta atvinnustarfsemi í viðkomandi húsnæði. Alþjónustuveitandi skal tryggja að póstkassar sem falla undir alþjónustu séu tæmdir a.m.k. tvisvar í viku eða að losun sé í samræmi við fjölda dreifingardaga á viðkomandi svæði að teknu tilliti til eftirspurnar eftir þjónustu.
Ekki er samkeppni í bréfaþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins nema að litlum hluta hvað varðar dreifingu. Engin söfnun á sér stað, ekki söfnun eða dreifing erlendra bréfa eða önnur umsýsla. Þannig er landið allt utan höfuðborgarsvæðisins óvirkt markaðssvæði hvað varðar heildarþjónustu vegna bréfa.
Rétt er að vekja athygli á því að þau bréf sem enn eru send hér á landi eru að langstærstum hluta bréf frá fyrirtækjum og/eða stofnunum til neytenda, oft sem magnpóstur. Þessum sendingum fer enn ört fækkandi á Íslandi eins og í heiminum öllum, enda er það yfirlýst markmið stjórnvalda og margra fyrirtækja og sjóða að auka stafræna þjónustu.
Í ákvörðun Byggðastofnunar segir:
Aðgengi að þjónustu er á meðal mikilvægustu forsendna byggðar um allt land. Í þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036 er því meginmarkmiði lýst að í öllum landshlutum verði blómlegar byggðir og öflugir byggðakjarnar þar sem stuðlað verði að bættum lífskjörum landsmanna og búsetufrelsi með sem jöfnustu aðgengi að grunnþjónustu, húsnæði og fjölbreyttum atvinnutækifærum.[1]
Aðgengi að viðeigandi póstþjónustu er á meðal mikilvægustu þjónustuþátta og mætti jafnvel flokka sem grunnþjónustu. Veiting póstþjónustu er því ekki síst byggðamál sem verður að nálgast út frá hagsmunum þeirra sem þjónustunnar njóta og ekki síst hinna dreifðu byggða.
Samkvæmt lögum um póstþjónustu er alþjónusta í póstþjónustu skilgreind sem þjónusta sem allir notendur póstþjónustu á Íslandi eiga rétt á, sem uppfyllir gæðakröfur og er á viðráðanlegu verði. Samsvarandi þjónusta skal standa til boða notendum sem búa við sambærilegar aðstæður. Alþjónusta skal á hverjum tíma taka mið af tækni- og samfélagsþróun, hagrænum þáttum og þörfum notenda.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

