Fara í efni  

Fréttir

Fjársjóðurinn sem fólginn er í samheldni íbúa í Reykhólahreppi

Fjársjóðurinn sem fólginn er í samheldni íbúa í Reykhólahreppi
Frá íbúafundi Fjársjóðs fjalla og fjarða

Íbúafundur var haldinn í byggðaþróunarverkefninu Fjársjóður fjalla og fjarða fimmtudaginn 15. október sl. Þetta er annað árið í röð sem slíkur fundur er haldinn undir merkjum verkefnisins og ánægjulegt var sjá að íbúar í Reykhólahreppi fjölmenntu á fundinn og tóku virkan þátt. Hrefna Jónsdóttir formaður verkefnisstjórnar setti fundinn og ávarpaði samkomuna. Hún bauð nýjan verkefnisstjóra, Guðmund Konráðsson, velkominn til starfa um leið og hún þakkaði Emblu Dögg Bachmann fyrir góð störf í þágu verkefnisins á fyrsta ári þess. Því næst kvaddi Kjartan Þór Ragnarsson, sveitarstjóri Reykhólahrepps, sér hljóðs og lýsti yfir ánægju með framvindu verkefnisins til þessa og kvaðst bjartsýnn á framhaldið.

Framvinda verkefnisins

Guðmundur verkefnisstjóri kynnti sína aðkomu að verkefninu en hann hóf störf síðsumars og hefur til þessa verið að kynnast samfélaginu og þeim verkefnum sem eru í gangi undir merkjum byggðaþróunarverkefnisins. Guðmundur fór yfir stöðu verkefnisins, fjölda frumkvæðisverkefna og stöðu þeirra og hvatti íbúa til samstöðu og dáða til frekari eflingar samfélagsins.  

Frumkvöðlar og frumkvæðisverkefni

Því næst stigu frumkvöðlar á stokk og sögðu frá frumkvæðisverkefnum sínum. Fyrstur var Guðjón Dalkvist Guðjónsson sem sagði frá samstarfsverkefni um hönnun og uppsetningu fuglaskilta á Reykhólum. Næst sagði Herdís Erna Matthíasdóttir frá styrktu verkefni þar sem unnið er að hönnun og uppsetningu á aðstöðu fyrir sjósund.

Frumkvæðissjóður Fjársjóðs fjalla og fjarða

Kristján Þ. Halldórsson fulltrúi Byggðastofnunar ræddi við íbúa um umgjörð Frumkvæðissjóðs Fjársjóðs fjalla og fjarða en tvær úthlutanir hafa verið í verkefninu til þessa. Íbúar voru hvattir til að ljúka við verkefni sín sem fyrst með því að skila inn lokaskýrslum. Fram kom að verkefnisstjóri er boðinn og búinn til að aðstoða styrkþega við slíkt. Ráðgert er að fljótlega á næsta ári verði opnað fyrir umsóknir á ný í sjóðinn, tímasetning verður þó ekki ákveðin fyrr en styrkþegar hafi lokið sem flestum verkefnum sem nú eru í vinnslu.

Uppbyggingarsjóður

Aðalsteinn Óskarsson hjá Vestfjarðastofu kvaddi sér hljóðs og minnti á að umsóknarfrestur vegna umsókna í Uppbyggingarsjóð væri nú opinn og ráð að þeir sem hyggjast sækja um þar hefðu hraðar hendur þar sem lokað verður fyrir umsóknir kl. 14:00 miðvikudaginn 21. okt. nk. Aðalsteinn hvatti íbúa til dáða varðandi frumkvöðlaverkefni og minnti á að bæði Frumkvæðissjóður Fjársjóðs fjalla og fjarða og Uppbyggingarsjóður væru oft sú hvatning sem gæti komið frumkvöðlum af stað í góðum verkefnum. Ennfremur minnti hann á að starfsfólk Vestfjarðastofu væri reiðubúið til að aðstoða við gerð umsókna.

Umræður um verkefnisáætlun

Eftir að hlé var gert á fundinum þar sem sveitarfélagið bauð upp á kvöldverð fyrir fundargesti hófust líflegar umræður í hópum. Íbúar rýndu verkefnisáætlun, meginmarkmið og starfsmarkmið og settu fram ábendingar um ný starfsmarkmið og/eða lögðu fram tillögur að breytingum. Gögn frá fundinum verða tekin saman og rýnd í verkefnisstjórn. Eftir að umræðum lauk var fundi slitið.

Heimsóknir til styrkþega

Hluti verkefnisstjórnar heimsótti styrkþega heim fyrr um daginn. Fyrst var haldið í Handverksmarkaðinn Össu í Króksfjarðarnesi en þar tók Sveinn Ragnarsson á móti gestum og sagði m.a. frá styrktu verkefni sem fólst m.a. í endurbótum og búnaðarkaupum fyrir eldhúsið í markaðnum. Því næst var haldið í Djúpadal þar sem þau Leifur Samúelsson og Guðrún Samúelsdóttir sem stunda ferðaþjónustu sögðu frá sínum verkefnum í stækkun gistirýmis og bættri aðstöðu. Á Reykhólum bættust svo fleiri fulltrúar stjórnar í hópinn og þar var Báta- og hlunnindasýningin skoðuð með leiðsögn Rebekku Eiríksdóttur. Að lokum var haldið í Búðina þar sem Lovísa Ósk Jónsdóttir tók á móti verkefnisstjórn og sagði frá og sýndi hópnum ljósmyndasýninguna Augnablik í Reykhólahreppi.

Starfsfólk Byggðastofnunar þakkar íbúum og samstarfsaðilum kærlega fyrir fróðlegan og árangursríkan dag í Reykhólahreppi.

Hér má sjá myndir sem teknar voru af þessu tilefni, myndasmiður var Kristján Þ. Halldórsson.

Guðmundur Konráðsson nýr verkefnisstjóri Fjársjóðs fjalla og fjarða

Kjartan Þór Ragnarsson sveitarstjóri ávarpaði fundinn

 

Guðjón Dalkvist Guðjónsson sagði frá fuglaskiltaverkefni

Herdís Erna Matthíasdóttir sagði frá sjósundsverkefni

 

Lovísa Ósk Jónsdóttir sagði frá ljósmyndasýningu sinni Augnablik í Reykhólahreppi.

 

Sveinn Ragnarsson sagði frá endurbótum í Handverksmarkaði Össu á Króksfjarðarnesi

 

Leifur Samúelsson og Guðrún Samúelsdóttir í ferðaþjónustunni í Djúpadal

 

Rebekka Eiríksdóttir tók á móti gestum á Báta- og hlunnindasýningunni

 

Verkefnisstjórn Fjársjóðs fjalla og fjarða


Verkefnið er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar, C.2, og markmið þess er að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Verkefnið byggir á samstarfi Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags, landshlutasamtaka og síðast en ekki síst íbúa hvers þátttökubyggðarlags. Því er einkum ætlað að styðja við frumkvæði og þátttöku íbúa til hagsbóta fyrir samfélagið í víðum skilningi.

 

 

 

 


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389