Fara í efni  

Fréttir

Fjögur verkefni styrkt af Byggðarannsóknasjóði

Stjórn Byggðarannsóknasjóðs hefur ákveðið að styrkja fjögur verkefni á árinu 2020. Verkefnin sem styrk hljóta eru rannsóknir sem lúta að áhrifum fjórðu iðnbyltingarinnar, fasteignamarkaði, kortlagningu örorku og verslun í dreifbýli.

Byggðarannsóknasjóður er fjármagnaður af byggðaáætlun og með framlagi frá Byggðastofnun og  hefur þann tilgang að efla byggðarannsóknir og bæta þannig þekkingargrunn fyrir stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum.

Auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn 8. febrúar og umsóknarfrestur rann út þann 12. mars. Alls bárust 14 umsóknir, samtals að upphæð rúmar 38 m.kr. og heildarkostnaður verkefna er rúmar 58,5 m.kr. Til úthlutunar voru 10 m.kr. Umsóknirnar voru fjölbreyttar og uppfylltu skilyrði sjóðsins.

Verkefnin fjögur sem stjórn Byggðarannsóknasjóðs ákvað að styrkja að þessu sinni eru:

Heiti verkefnis

Umsækjandi

Styrkupphæð

Byltingar og byggðaþróun: hlutverk þekkingarsetra í byggðaþróun fjórðu iðnbyltingarinnar

Þekkingarnet Þingeyinga

2.500.000,-

Fasteignamarkaður og foreldrar um land allt: Getur hátt fasteignaverð fælt barnafjölskyldur af landsbyggðinni eða haldið þeim frá?

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi

2.000.000,-

Örorka á Norðurlandi eystra – kortlagning

Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA)

2.500.000,-

Verslun í heimabyggð: greining á sóknarfærum dreifbýlisverslana

Emil B. Karlsson

3.000.000,-

 

Stutt lýsing á hverju verkefni:

Byltingar og byggðaþróun: hlutverk þekkingarsetra í byggðaþróun fjórðu iðnbyltingarinnar, Þekkingarnet Þingeyinga.

Markmið rannsóknarinnar er að greina áhrif fjórðu iðnbyltingarinnar í byggðum landsins og mögulegar leiðir til að nýta innviði þekkingarsetra til að mæta áskorunum og tækifærum byltingarinnar.

Fasteignamarkaður og foreldrar um land allt: Getur hátt fasteignaverð fælt barnafjölskyldur af landsbyggðinni eða haldið þeim frá? Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi.

Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða hvað hefur áhrif á búferlaflutninga fólks á barneignaraldri og að styrkja fyrri greiningu á þessum þáttum svo auðveldara sé að hanna íbúaþróunarlíkön fyrir sveitarfélög. Í þriðja lagi að auka skilning á þeim áhrifum sem mikil sókn utanbæjarmanna í íbúðir fjarri heimahögum þeirra kunna að hafa.

Örorka á Norðurlandi eystra – kortlagning, Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA).

Markmiðið með verkefninu er að kortleggja umfang og þróun örorku á Norðurlandi eystra í samhengi við þróun vinnumarkaðar og lýðfræðilegra þátta. Þá er markmið að unnt verði að nýta niðurstöður rannsóknarinnar í þágu þeirra sem vinna að atvinnuþróun, vinnumarkaðsúrræðum, menntamálum endurhæfingu fólks á vinnumarkaði og byggðaþróun og að verkefnið stuðli að aukinni þekkingu á viðfangsefninu á landsvísu.

Verslun í heimabyggð: greining á sóknarfærum dreifbýlisverslana. Umsækjandi Emil B. Karlsson.

Markmið rannsóknarinnar er að leiða í ljós hverjar eru skilvirkustu stuðningsaðgerðir við litlar verslanir í dreifbýli. Niðurstöðum er jafnframt ætlað að sýna hvaða þættir í rekstri dreifbýlisverslana skipta mestu til að lifa af í samkeppni við stærri verslunarkeðjur.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Þorgrímsdóttir sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar  sigga@byggdastofnun.is.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389