Fréttir
Gísli Einarsson er handhafi Landstólpans 2026
Gísli Einarsson dagskrárgerðarmaður, uppistandari, samfélagsrýnir, blaðamaður, fararstjóri, rithöfundur og lífskúnstner er handhafi Landstólpans 2026.
Gísli Einarsson hefur verið drifkraftur í að efla sitt samfélag um langa hríð. Hvort sem um er að ræða nærsamfélagið eða landið allt og er ferill hans í senn litríkur og fjölbreyttur. Hann hefur stuðlað að jákvæðri og sterkri ímynd landsbyggðanna með því að vekja athygli á kröftugu lífi í landsbyggðunum með umfjöllun sinni. Gísli hefur komið víða við, hann stofnaði meðal annars héraðsfréttablaðið Skessuhorn árið 1998 ásamt því að vinna sem frétta- og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, þar sem hann starfar enn í dag.
Í þáttunum Út og suður sem sýndir voru á árunum 2003-2007 og síðar Landanum sem hóf göngu sína í sjónvarpi árið 2010, lagði Gísli áherslu á að segja sögur af fólki, atvinnulífi, menningu og daglegu lífi í fjölbreyttum byggðarlögum. Það er skemmtileg tilviljun að fyrsta viðtal Gísla í þáttunum Út og suður var við fyrsta handhafa Landstólpans, Jón Jónsson þjóðfræðing og menningarfulltrúa á Ströndum. Aðspurður segir Gísli að mikill skóli hafi falist í gerð þáttanna Út og suður. Honum hafi fundist vera vöntun á fréttum úr landsbyggðunum því það sé vissulega ákveðið byggðamál að það séu sagðar sögur úr öllum landshlutum. Gísli segir að markmiðið hafi aldrei verið að sýna „kynlega kvisti“ úti á landi, heldur þvert á móti að eyða þeirri mýtu að landsbyggðarfólk sé á einhvern hátt furðulegra en annað fólk. Viðfangsefnið er og hafi ævinlega verið „venjulegt fólk sem er að gera óvenjulega hluti“. Þannig hefur umfjöllun sem Gísli og samstarfsfólk hefur komið að, varpað kastljósi á lífið í landsbyggðunum með faglegum hætti. Umfjöllunin hefur eflt þá ímynd að í landsbyggðunum fer fram faglegt menningarstarf, öflugt atvinnulíf og skapandi frumkvöðla- og nýsköpunarstarf.
Gísli kveðst vera stoltastur af því að geta sýnt fram á, að það sé jafn sjálfsagt að vera með nýsköpunarverkefni í litlu þorpi úti á landi eins og það er að vera með sambærilegt verkefni á höfuðborgarsvæðinu. Það er nefnilega öflugt fólk alls staðar.
Það er Byggðastofnun mikill heiður að veita Gísla Einarssyni samfélagsviðurkenninguna í ár og óskum við honum innilega til hamingju með Landstólpann. Um leið vonumst við til að viðurkenningin verði öðrum hvatning um að leggja lóð á vogarskálar við að vekja athygli á blómlegum byggðum um allt land.

Frá verðlaunaafhendingunni. Myndasmiður: Hjalti Árnason
Viðurkenningargripurinn í ár er olíumálverk, eftir myndlistarkonuna Hjördísi Alexandersdóttur sem býr í Þorlákshöfn. Náttúran, blóm og fuglar eru henni m.a. innblástur í myndlistinni en hún málar bæði með vatnslitum, olíu og akrýl. Hjördís hefur tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hér heima og erlendis og hafa verk eftir hana hafa ratað víða um heim.
Auk listaverksins hlýtur Landstólpinn kr. 1.000.000 í verðlaun.
Landstólpinn er samfélagsviðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á ársfundi sínum. Landstólpinn er nú afhentur í fimmtánda sinn, en hann var fyrst afhentur árið 2011. Viðurkenningunni er ætlað að vekja athygli á því góða og fjölbreytta starfi sem fram fer í landsbyggðunum. Við val á Landstólpa ár hvert er leitast eftir því að viðkomandi hafi gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni, aukið virkni íbúa eða jafnvel fengið þá til beinnar þátttöku í tilteknu verkefni og aukið samstöðu og jákvæðni íbúa.
Í ár bárust samtals 27 tilnefningar til 16 aðila/verkefna. Ljóst er að mörg í þeim hópi sem hlutu tilnefningu hefðu sómt sér vel sem Landstólpinn 2026.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

