Fara í efni  

Fréttir

Íbúar sameinast um Töfra Tálknafjarðar

Töfrar Tálknafjarðar, er heiti á nýju byggðaþróunarverkefni, sem hófst með íbúaþingi 30. – 31. október síðastliðinn, þar sem yfir fjórðungur íbúa tók virkan þátt í lifandi og málefnalegum umræðum.  Rædd voru 26 málefni, samkvæmt uppástungum þátttakenda, sem síðan forgangsröðuðu þeim eftir mikilvægi.

Áherslur íbúa

Samgöngumál er sá einstaki málaflokkur sem rataði efst í þeirri forgangsröðun, en þegar betur er að gáð fengu ýmis mál sem varða atvinnu mest vægi. Þar var horft til tækifæra í sjávarútvegi, landbúnaði og ferðaþjónustu ásamt áherslu á ímynd og markaðssetningu og óstaðbundin störf. Þá telja íbúar að húsnæðismál, skólamál, menning, afþreying og aðstaða til útivistar, geti skipt sköpum til að efla samfélagið á Tálknafirði. Fram kom að standa þurfi vörð um Tálknafjörð sem fjölskylduvænt samfélag, liður í því eru fjölskylduvænni vinnustaðir. Æskilegt væri að bæta heilbrigðisþjónustu, að mati þátttakenda, sem ræddu líka ýmsar hugmyndir til að bæta aðstöðu og félagsstarf eldri borgara. Þá kom fram mikill áhugi á að bæta ásýnd og umgengni og auka áherslu á náttúruvernd.

Rödd nemenda

Á þinginu voru kynnt skilaboð frá börnunum í Tálknafjarðarskóla, sem eiga samhljóm við margar af þeim aðal áherslum sem ræddar voru á íbúaþinginu, eins og skólamál, húsnæðismál, afþreyingu og samgöngur. En einnig gæði samfélagsins sem felast meðal annars í náttúru, samstöðu og fólkinu sjálfu. Þau kunna að meta kostina við að búa á litlum stað þar sem allir krakkarnir þekkjast vel og hægt er að fá hjálp við námið. Þessir ungu Tálknfirðingar eiga sér ýmsa drauma, til dæmis um tréhús, íþróttabraut og fleiri list- og verkgreinar í skólanum.

Þinghaldið

Þinginu stýrði Sigurborg Kr. Hannesdóttir hjá ILDI og mun hún nú vinna samantekt um skilaboð þingsins.

Verkefnisstjórn er skipuð fulltrúum þeirra sem standa að verkefninu, sem eru Byggðastofnun, Vestfjarðastofa og Vesturbyggð, ásamt íbúum Tálknafjarðar. Verkefnið er hið sautjánda í röðinni í verkefnum Brothættra byggða á vegum Byggðastofnunar. 

Verkefnisstjóri er Bergdís Þrastardóttir, en hún tók til starfa í ágúst og er starfsmaður Vestfjarðastofu.

Næstu skref

Það kemur nú í hlut verkefnisstjórnar og verkefnisstjóra að setja saman verkefnisáætlun, sem m.a. byggir á skilaboðum íbúaþingsins. Drög að verkefnisáætlun verða svo lögð fyrir íbúa á íbúafundi sem vænta má að haldinn verði í upphafi árs 2027. Í kjölfarið verður opnað fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóð Töfra Tálknafjarðar. Verkefnisáætlunin gildir til fimm ára, en er endurskoðuð á hverju ári í samstarfi við íbúa.

Tálknafjörður býr yfir auðlindum í náttúru, sögu og mannauði og þessar auðlindir vilja íbúar standa vörð um og nýta enn frekar til nýsköpunar, til að sækja fram af krafti og gera enn meira úr töfrum Tálknafjarðar. Íbúum Tálknafjarðar er þakkað fyrir glæsilega mætingu og virka þátttöku á vel heppnuðu íbúaþingi, það eru spennandi tímar framundan í samstarfi við íbúa og aðra hagaðila.

Hér fyrir neðan má sjá myndir sem teknar voru á íbúaþinginu, myndasmiður var Kristján Þ. Halldórsson.

Stungið upp á málefnum.

Málefnahópar undirbúnir.

Frá íbúaþingi.

Málefnahópur að störfum.

Málefnahópur að störfum.

Málefnahópur að störfum.

Málefnahópur að störfum.

Orðstafur gekk á milli þátttakenda.

Gleðin var við völd.

Þátttakendur á íbúaþingi.

Hluti verkefnisstjórnar Töfra Tálknafjarðar ásamt forstöðumanni þróunarsviðs Byggðastofnunar. Á myndina vantar Gunnlaug Björn Jónsson, fulltrúa íbúa. Mynd: Guðmundur Konráðsson.

 

Verkefnið Brothættar byggðir er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar, C.2, og markmið þess er að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Verkefnið byggir á samstarfi Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags, landshlutasamtaka og síðast en ekki síst íbúa hvers þátttökubyggðarlags. Því er einkum ætlað að styðja við frumkvæði og þátttöku íbúa til hagsbóta fyrir samfélagið í víðum skilningi.

 

 

 

 

 

 


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389