Fara í efni  

Fréttir

Kraftur og samstaða á Fjórðungsþingi Vestfirðinga!

71. Fjórðungsþing Vestfirðinga fór fram á Patreksfirði í vikunni þar sem góð þátttaka og góður andi voru allsráðandi. Þar komu saman sveitarstjórnarfulltrúar af öllum Vestfjörðum, margir í fyrsta sinn, til að ræða framtíð landshlutans og helstu hagsmunamál. Byggðastofnun átti einnig tvo fulltrúa á þinginu.

Svæðisskipulag Vestfjarða var í brennidepli og tóku þingfulltrúar m.a. þátt í vinnustofum um forgangsröðun verkefna og innleiðingu skipulagsins. Þá kynnti starfsfólk Vestfjarðastofu fjölbreytta starfsemi sína og þjónustu við sveitarfélög, atvinnulíf og íbúa.

Á þinginu voru samþykktar 13 ályktanir um mikilvæg framfaramál, meðal annars bættar samgöngur, öflugri innviði, aukið orkuöryggi, fjarskipti, atvinnumál og skólaþjónustu. Hér má lesa allar ályktanir þingsins.

Sérstök stefnuályktun um Svæðisskipulag Vestfjarða undirstrikar mikilvægi samstöðu ríkis, sveitarfélaga og samstarfsaðila um áframhaldandi uppbyggingu.

Sameiginleg framtíðarsýn Vestfirðinga er skýr: Sjálfbærir, samkeppnishæfir og eftirsóknarverðir Vestfirðir þar sem samfélög og atvinnulíf blómstra.

Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389