Fréttir
Lítil arðsemi og vinnuálag reyna á seiglu bænda
Martina Aymonod lauk í mars meistaranámi í sjávarbyggðafræði frá Háskólasetri Vestfjarða. Lokaverkefni hennar „Assessing socio-ecological resilience through farming in Iceland“ var styrkt af Byggðarannsóknasjóði í lok árs 2025.
Viðfangsefni verkefnisins var að kanna hlutverk býla í dreifbýli á Íslandi og hvernig bændur upplifa og takast á við félagslegar, efnahagslegar og umhverfislegar áskoranir. Tilgangurinn var að greina hvað styður seiglu landbúnaðarins, það er hæfnina til að aðlagast breytingum og viðhalda búskap til framíðar.
Notaðar voru blandaðar rannsóknaraðferðir. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl við fólk í ólíkum búgreinum og jafnframt fóru fram vettvangsathuganir. Einnig var gerð rafræn spurningakönnun sem 60 einstaklingar svöruðu, bæði bændur og aðrir.
Niðurstöðurnar benda til að í landbúnaði blasi við fjölmargar áskoranir og áhyggjuefni tengdar félagslegum og fjárhagslegum þáttum. Einna stærstu áskoranirnar eru lítil arðsemi, mikið vinnuálag og erfiðleikar við að finna starfsfólk. Þessar aðstæður torvelda nýliðun og skapa óvissu um framtíð búskapar. Fram kemur að margir smábændur þurfa að afla tekna með öðrum störfum til að framfleyta fjölskyldum sínum. Jafnframt að samvinna bænda, samnýting véla, miðlun þekkingar og sterk tengsl við samfélag og land séu mikilvægir þættir í seiglu þeirra. Fjölbreyttari framleiðsla og tenging búskapar við ferðaþjónustu eru meðal leiða sem bændur nýta til að styrkja reksturinn. Niðurstöðurnar sýna að viðhorf viðmælenda eru blendin til framtíðar landbúnaðar á Íslandi.
Rannsóknin veitir innsýn í reynslu og viðhorf þátttakenda, en aðgengi að viðmælendum, ójöfn landfræðileg dreifing og tungumálaörðugleikar takmarka hversu víðtækar ályktanir er hægt að draga af niðurstöðum. Engu að síður er niðurstaða rannsóknarinnar sú að landbúnaður felur í sér erfið vinnuskilyrði og er ekki nægjanlega arðbær. Þetta ógnar möguleikum komandi kynslóða sem vilja hefja búrekstur og vekur efasemdir um framtíðarhorfur.
Höfundur bendir á að þörf sé á auknum stuðningi stjórnvalda og stofnana við smábændur sem og fræðslu til að auka vitund neytenda um matvælaframleiðslu.
Sjá meistararitgerð:
Sustaining the rural: Assessing socio-ecological resilience through farming in Iceland
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember