Fréttir
Opið fyrir umsóknir í Byggðarannsóknasjóð
Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Byggðarannsóknasjóði. Tilgangur sjóðsins er að efla byggðarannsóknir og veita styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem stuðlað geta að jákvæðri byggðaþróun og bæta þekkingargrunn fyrir stefnumótun, áætlanagerð og aðgerðir á sviði byggðamála.
Umsóknarfrestur er til hádegis, 4. mars 2026 (til kl. 12:00). Byggðarannsóknasjóður hefur allt að 17,5 m.kr. til úthlutunar. Styrkir verða veittir til eins árs.
Í umsóknum skal koma fram greinargóð lýsing á rannsókn, markmiðum, ávinningi, nýnæmi og hvernig rannsóknin styður við tilgang sjóðsins. Gera þarf grein fyrir tengslum rannsóknar við byggðaþróun og eftir atvikum hvernig rannsókn fellur að áherslum byggðaáætlunar 2022-2036.
Eftirfarandi þættir hafa vægi við mat á umsóknum:
- Hvernig verkefnið styður við tilgang sjóðsins og tengist byggðaþróun.
- Vísindalegt og hagnýtt gildi verkefnis.
- Nýnæmi verkefnis.
- Gæði umsóknar (skýr markmið, vönduð rannsóknaráætlun og hnitmiðaður texti).
Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnanir eða aðrir lögaðilar. Sjá nánar:
- Rafrænt umsóknarform (umsóknargátt Byggðastofnunar)
- Reglur Byggðarannsóknasjóðs
- Starfsreglur stjórnar Byggðarannsóknasjóðs
- Byggðaáætlun 2022-2036
Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra Björnsdóttir
hannadora@byggdastofnun.is / sími 455 5454
Frekari upplýsingar um Byggðarannsóknasjóð er að finna á vef Byggðastofnunar. Styrkir úr Byggðarannsóknasjóði hafa verið veittir frá árinu 2015. Alls hafa 48 verkefni hlotið styrk á árunum 2015-2025 að heildarfjárhæð 123,8 m.kr. Á árinu 2025 fengu eftirfarandi fimm verkefni styrk:
- Strandveiðar og byggðakvótar: Verður auknum umsvifum í strandveiðum og byggðakvótum vart í auknum atvinnutekjum eða útsvarstekjum viðkomandi sveitarfélaga? Styrkþegi er Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst, Vífill Karlsson.
- Tvíeggjað sverð, leki óstaðbundinna starfa til höfuðborgarsvæðisins. Styrkþegi er Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, Hjalti Jóhannesson.
- Skipulag sjálfbærrar landbúnaðarframleiðslu á Íslandi. Styrkþegi: Salvör Jónsdóttir, Háskóla Íslands.
- Samvinna og samræming áfangastaðastofa og sveitarfélaga um sjálfbæra ferðamálaþróun. Styrkþegar: Anna Karlsdóttir og Íris Hrund Halldórsdóttir, báðar við Háskóla Íslands.
- Erlendar fjárfestingar í jörðum á Íslandi. Sýn á áhrif af þróun byggða og samheldni íbúa. Styrkþegar: Anna Karlsdóttir og Magnfríður Júlíusdóttir, báðar við Háskóla Íslands.
Byggðarannsóknasjóður hefur það að markmiði að veita styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem stuðlað geta að jákvæðri byggðaþróun og bætt þekkingargrunn sem nýtist við stefnumótun, áætlanagerð og aðgerðir á sviði byggðamála. Auglýsing um styrki til byggðarannsókna var birt 22. janúar með umsóknarfrest til 3. mars. Alls bárust 21 umsókn.
Fréttasafn
- 2026
- janúar
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

