Fréttir
Reykjanesbær styrkir stöðu sína sem þjónustukjarni
Reykjanesbær gegnir lykilhlutverki í þjónustusókn á Suðurnesjum samkvæmt niðurstöðum þjónustukönnunar Byggðastofnunar, en gagnaöflun fór fram árið 2024. Þegar allir þjónustuþættir könnunarinnar eru teknir saman eru um 89% allra þjónustusóknartilvika Suðurnesjabúa innan landshlutans. Langflest tilvikin, eða 82%, eru í Reykjanesbæ en um 9% á höfuðborgarsvæðinu. Suðurnes mynda því að stórum hluta eigið þjónustusvæði, þótt mikill munur sé á því hversu mikið íbúar einstakra byggðarlaga sækja þjónustu í sínu nærumhverfi.
Í Reykjanesbæ (Keflavík, Njarðvík/Hafnir og Ásbrú) er um 90% þjónustu sótt innan bæjarins. Í Vogum er mynstrið allt annað. Þar er aðeins um 15% þjónustusóknar innanbæjar, um 42% á höfuðborgarsvæðinu og 41% í Reykjanesbæ. Þetta kann að tengjast vinnusókn íbúa í Vogum, en 74% starfandi svarenda pendla, þ.e. sækja vinnu út fyrir búsetusvæðið þrisvar sinnum í viku eða oftar, og tæp 59% sækja vinnu til höfuðborgarsvæðisins. Það getur ýtt undir að erindum sé einnig sinnt þar samhliða vinnuferðum. Vogar eru jafnframt stærsti bær landsins með jafn lágt hlutfall þjónustusóknar innanbæjar. Sú þjónusta sem Vogabúar nota oftast innanbæjar er sund og líkamsrækt, en lágvöruverðsverslun, apótek og ýmis sérhæfð þjónusta eru sótt út fyrir sveitarfélagið. Sjúkraþjálfun og sérfræðilæknaþjónusta eru til dæmis nær alfarið sótt á höfuðborgarsvæðið.
Í Sandgerði og Garði er um þriðjungur þjónustusóknar innan eigin byggðarlags, 32% í Sandgerði og 31% í Garði. Reykjanesbær er helsti þjónustustaðurinn utan heimabyggðar, með um 51% þjónustusóknar Sandgerðinga og 61% þjónustusóknar Garðbúa. Hafa ber þó í huga að niðurstöðurnar lýsa stöðunni 2024. Heilsugæslusel opnaði 1. júní 2025 í Sandgerði, ári eftir að könnunin fór fram, aðgengi íbúa Suðurnesjabæjar að heilsugæslu í heimabyggð er því betra en niðurstöðurnar endurspegla.
Fólk notar þjónustu oftar og aukningin er mest á Suðurnesjum
Þjónustusókn svarenda utan höfuðborgarsvæðisins jókst um 18% milli þjónustukannana Byggðastofnunar þegar horft er til þeirra 20 þjónustuþátta sem eru að fullu sambærilegir milli kannana. Meðaltíðni þjónustusóknar vegna þessara þátta jókst úr 286 í 337 tilvik á ári á hvern svaranda. Á Suðurnesjum varð aukningin enn meiri, eða úr 281 tilviki í 344, sem samsvarar 22%. Aukningin skýrist fyrst og fremst af tíðari ferðum Suðurnesjabúa í lágvöruverðsverslanir, en notkun jókst einnig meðal annars á sundi, líkamsrækt, apótekum, veitingahúsum, sjúkraþjálfun og heilsugæslu. Í samanburðinum eru þjónustusóknartilvik lögð saman og því vegur þjónusta sem er notuð oft þyngra í heildarniðurstöðunni en þjónusta sem sótt er sjaldnar.
Þróunin innan Suðurnesja er ekki einsleit. Í Reykjanesbæ jókst tíðni þjónustusóknar um 19% og hlutfall þjónustu sem íbúar sóttu innan eigin þjónustusvæðis hækkaði um 3,2 prósentustig. Reykjanesbær er eina svæði Suðurnesja þar sem hlutfall þjónustusóknar innan eigin þjónustusvæðis jókst. Staða bæjarins sem þjónustukjarna styrktist jafnframt gagnvart hluta nágrannabyggðanna: Hlutdeild Reykjanesbæjar í heildarþjónustusókn Garðbúa jókst um 7,7 prósentustig og um 2,5 prósentustig hjá Vogabúum, en stóð í stað hjá Sandgerðingum.
Í Vogum jókst meðaltíðni þjónustusóknar um 64%, en á sama tíma lækkaði hlutfall þjónustu sem var sótt innanbæjar um 4,8 prósentustig. Hlutdeild höfuðborgarsvæðisins í þjónustusókn Vogabúa jókst um 6,4 prósentustig og var orðin rúm 42%, álíka mikil og hlutdeild Reykjanesbæjar. Aukin tíðni þjónustusóknar jafngildir því ekki endilega bættu aðgengi að þjónustu í nærumhverfinu; hún getur bæði endurspeglað aukna notkun þjónustu og meiri þörf fyrir að ferðast milli byggðarlaga.
Í mælaborðum Byggðastofnunar um þróun íbúafjölda má sjá að íbúum á Suðurnesjum hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Íbúum landshlutans fjölgaði um ríflega sjö þúsund, eða um 31%, milli kannana, áranna 2017 og 2024. Á sama tímabili jókst hlutfall íbúa með erlent ríkisfang úr 14,5% í tæplega 27%.
Þessar breytingar segja ekki til um orsakir þjónustumynstursins. Niðurstöðurnar vekja þó spurningar um hvort þjónustuframboð og innviðir hafi eflst í takt við fólksfjölgun á hverjum stað og hvort gott aðgengi að daglegri þjónustu sé í öllum byggðarlögum Suðurnesja. Þar undir falla meðal annars samgöngur milli byggðarlaga, staðsetning verslana og heilbrigðisþjónustu, framboð íþrótta- og tómstundaþjónustu og aðgengi fjölbreytts íbúahóps að upplýsingum um þjónustu.
Taka skal fram að vegna óvissu um búsetu svarenda frá Grindavík í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesskaga var vinnu- og þjónustusókn þeirra ekki tekin með í greininguna. Tímabundin búseta margra íbúanna í öðrum sveitarfélögum gerir illmögulegt að túlka svör þeirra sem mælikvarða á vinnu- og þjónustusókn frá Grindavík.
Niðurstöðurnar byggja á þjónustukönnun Byggðastofnunar sem 6.941 einstaklingur utan höfuðborgarsvæðisins svaraði árið 2024. Gögnin eru óvigtuð og þátttaka var mismikil eftir svæðum. Niðurstöður fyrir fámenn svæði ber því að túlka sem vísbendingar og hafa fjölda svarenda til hliðsjónar. Þegar breytingar eru skoðaðar er borið saman við fyrri kannanir, frá 2016 á Norðurlandi vestra og frá 2017 í öðrum landshlutum.
Nánari umfjöllun um vinnu- og þjónustusókn er að finna í skýrslu Byggðastofnunar:
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

