Fréttir
Nýjar tölur um fjölda stöðugilda á vegum ríkisins
Byggðastofnun hefur frá áramótum 2013/2014 gert árlega könnun á staðsetningu starfa á vegum ríkisins. Með störfum á vegum ríkisins er átt við stöðugildi greidd af Fjársýslunni, stöðugildi hjá opinberum hlutafélögum og stofnunum og stöðugildi hjá stofnunum sem hafa meirihluta rekstrartekna sinna af fjárlögum.
Fyrir liggja nú tölur um fjölda stöðugilda við áramót 2024/2025 og eru þær birtar í skýrslunni Hvar eru ríkisstörfin 31.12.2024? Einnig hefur mælaborð þar sem hægt er að skoða fjölda stöðugilda eftir landshlutum, sveitarfélögum og málaflokkum þáverandi ráðuneyta verið uppfært með nýjustu gögnum.
Helstu niðurstöður
Stöðugildi á vegum ríkisins voru 29.054 þann 31. desember 2024, þar af voru 18.802 (65%) skipuð af konum og 10.252 (35%) af körlum. Á árinu 2024 fjölgaði stöðugildum um 538 á landsvísu eða 1,9%.
Flest stöðugildi á vegum ríkisins eru staðsett á höfuðborgarsvæðinu, enda er meirihluti landsmanna búsettur þar. Hins vegar er hlutfall stöðugilda á höfuðborgarsvæðinu (70%) hærra en hlutfall landsmanna sem þar býr (64%).
Stöðugildum fjölgaði mest á höfuðborgarsvæðinu eða um 491 milli ára, mest vegna Landspítala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Háskóla Íslands. Mesta hlutfallslega fjölgunin var erlendis, fyrst og fremst vegna stöðugilda við alþjóðlega þróunarsamvinnu. Þar fyrir utan fjölgaði stöðugildum hlutfallslega mest á Vestfjörðum eða um 6,5% en sú fjölgun er aðallega á Ísafirði. Mesta fækkun stöðugilda var á Suðurlandi, 36 stöðugildi eða 2,0%.
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember