Fara í efni  

Fréttir

Skilgreining opinberrar þjónustu og jöfnun aðgengis

Byggðstofnun vinnur nú að verkefni af byggðaáætlun sem nefnist „skilgreining opinberrar þjónustu og jöfnun aðgengis“ (A-18). Markmið þess er að „íbúar landsis, óháð búsetu, hafi jafnt aðgengi að opinberri grunnþjónustu með bættum aðstæðum og tæknilausnum.“ Skilgreina á rétt fólks til opinberrar grunnþjónustu, svo sem heilbrigðisþjónustu, löggæslu, menntunar, samgangna og fjarskipta. Þegar skilgreining liggur fyrir verða unnar tillögur um tæknilega framkvæmd og jöfnun kostnaðar við að sækja einstaka þætti þjónustu á vegum ríkisins og gerðar tillögur um það í langtímaáætlun eigi síðar en árið 2021. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið ber ábyrgð á verkefninu, en Byggðastofnun sér um framkvæmdina í samstarfi við ýmsa aðila, s.s. ráðuneyti og samtök sveitarfélaga.

Verkefnið skiptist í nokkra þætti:  

a) Skilgreiningu á grunnþjónustu
b) Hvert er aðgengið að grunnþjónustunni
c) Hver er réttur til grunnþjónustu
d) Tillögur um jöfnun kostnaðar vegna þjónustusóknar

Vinna við verkefnið er nú statt í fyrsta hluta, skilgreiningu á grunnþjónustu. Til að ræða hana verða haldnir fundir með ýmsum aðilum, m.a. landshlutasamtökum sveitarfélaga. Þegar er búið að halda fundi með Eyþingi, Samtökum sveitarfélaga á Austurlandi og á Suðurnesjum.

Á fundunum er m.a. rætt um hvaða grunnþjónustu fólk telur nauðsynlega og hvar hún eigi að vera staðsett. Svæðið er greint í fjögur stig eftir þéttleika og stærð; yst er höfuðborgarsvæðið þar sem er hæst þjónustustig, næst koma landshlutakjarnar, því næst stærri bæir og loks fámennustu byggðirnar eða þorpin. Fundarmenn skoða hvaða þjónustuþættir ættu að þeirra mati að vera á hverju stigi fyrir sig.

Á fundina hafa mætt starfsmenn landshlutasamtaka og stjórnamenn og umræður verið afar fjörlegar. Á næstu vikum verða aðrir landshlutar heimsóttir. Þær niðurstöður sem fram koma á þessum fundum verða síðan grunnur að framhaldi verkefnisins.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389