Fara í efni  

Fréttir

Styrkir til vinnustaðaklasa um land allt

Styrkir til vinnustaðaklasa um land allt
Ísafjörður - mynd: SÁ.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur úthlutað tæpum 50 milljónum kr. í styrki til 26 verkefna til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Styrkirnir eru veittir á grundvelli byggðaáætlunar (aðgerð B.7 – Óstaðbundin störf). Markmiðið er að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni. Þetta er í fyrsta sinn sem styrkir eru veittir sérstaklega til að efla vinnustaðaklasa á landsbyggðinni.

Vinnustaðaklasi er skilgreint sem skipulagt og samnýtt vinnurými þar sem fjölbreytt vinnuaðstaða stendur til boða fyrir fleiri en einn vinnustað eða starfsstöðvar vinnustaða.

Styrkhæfir voru aðilar sem reka vinnustaðaklasa utan höfuðborgarsvæðisins. Í forgangi voru minni staðir þar sem atvinnulíf er einhæft, svæði sem hafa orðið fyrir verulegum áföllum í atvinnulíf eða svæði á fámennum vinnusóknarsvæðum. 

Framlögum var forgangsraðað í eftirfarandi flokka: a) Ný uppbygging á forgangssvæði; b) Fjölgun plássa á forgangssvæði; c) Rekstrarstuðningur á forgangssvæði; d) Ný uppbygging á miðlungs svæði; e) Fjölgun plássa á miðlungs svæði; f) Rekstrarstuðningur á miðlungs svæði og g) Rekstrarstuðningur á vinnusóknarsvæðum sem telja fleiri en 10.000 manns.

Yfirlit yfir styrkþega

Eftirtalin verkefni hlutu styrk til að byggja upp vinnustaðaklasa og styðja við sjálfbærni þeirra.

a. Ný uppbygging á forgangssvæði.

  • Frystihúsið Tálknafirði. (Akvamar ehf.) Styrkur: 4.000.000.
  • Fjarbúðin Hrísey. (Þróunarfélag Hríseyjar). Styrkur: 2.640.000.
  • Nýtingamiðstöðin Vopnafirði. (Nýtingamiðstöðin Vopnafirði). Styrkur: 3.600.000.

b. Fjölgun plássa á forgangssvæði. 

  • Engar umsóknir bárust innan þessarar forgangsröðunar.

c. Rekstrarstuðningur á forgangssvæði.

  • Skúrin samfélagsmiðstöð á Flateyri. (Skúrin samfélagsmiðstöð á Flateyri ehf.) Styrkur: 1.000.000.
  • Kistan Þórshöfn. (Langanesbyggð). Styrkur: 1.000.000.
  • Höfn Bakkafirði. (Langanesbyggð). Styrkur: 1.000.000.
  • Blábankinn á Þingeyri. (Samfélagsmiðstöðin á Þingeyri ses.) Styrkur: 1.000.000.
  • Ráðhúsið á Raufarhöfn. (Norðurþing). Styrkur: 1.000.000.

d. Ný uppbygging á miðlungs svæði.

  • Bjartsýni á Sauðárkróki. (Naflinn ehf.) Styrkur: 4.000.000.
  • Vatnseyrarbúð á Patreksfirði. (Vesturbyggð). Styrkur: 4.000.000.
  • Gígur í Mývatnssveit. (Náttúruverndarstofnun). Styrkur: 840.000.
  • F52 á Siglufirði. (F52 ehf.) Styrkur: 4.000.000.
  • Heilsukjarninn Laugum í Þingeyjarsveit. (Þingeyjarsveit). Styrkur: 4.000.000.
  • Atwork á Skagaströnd. (IWG Sigló ehf.) Styrkur: 2.400.000.

e. Fjölgun plássa á miðlungs svæði.

  • Skrifstofurými á Blönduósi. Umsækjandi: (Ámundakinn ehf.) Styrkur: 1.680.000.

f. Rekstrarstuðningur á miðlungs svæði.

  • Hraðið á Húsavík. (Þekkingarnet Þingeyinga). Styrkur: 1.000.000.
  • Végarður í Fljótsdalshreppi. (Fljótsdalshreppur). Styrkur: 1.000.000.
  • Gígur í Mývatnssveit. (Náttúruverndarstofnun). Styrkur: 1.000.000.
  • Setrið á Egilsstöðum. (Setrið vinnustofa ehf.) Styrkur: 1.000.000.
  • Hæðin Hvammstanga. (Hæðin á Höfðabraut ehf.) Styrkur: 1.000.000.
  • F52 á Siglufirði. (F52 ehf.) Styrkur: 1.000.000.
  • Atwork Ísafjörður. (IWG West ehf.) Styrkur: 1.000.000.
  • Heilsukjarninn á Laugum. (Þingeyjarsveit). Styrkur: 1.000.000.

g. Rekstrarstuðningur á vinnusóknarsvæðum sem telja fleiri en 10.000 manns.

  • Atwork Akureyri. (IWG AK ehf.) Styrkur: 3.360.000.
  • Breið á Akranesi. (Breið þróunarfélag). Styrkur: 1.000.000.
  • Drift EA á Akureyri. (Drift EA ses.) Styrkur: 1.000.000.

Umsóknarfrestur var til 2. febrúar sl. og alls bárust 29 umsóknir um styrki að upphæð 257 m.kr. Þriggja manna valnefnd var falið að meta allar umsóknir og gerði tillögu til ráðherra um úthlutun styrkja. Fjallað er um hlutverk og skipan valnefndar og mat umsókna í reglum um úthlutun innviðaráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036.

Frétt af vef stjórnarráðsins


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389