Fara í efni  

Fréttir

Tálknfirðingar fá gullið tækifæri til að hafa áhrif á sitt samfélag

Haldið verður tveggja daga íbúaþing á Tálknafirði föstudaginn 30. og laugardaginn 31. október næstkomandi. Íbúaþingið er eitt af upphafsskrefum í verkefninu Brothættar byggðir sem hófst nýlega í byggðarlaginu.

Á Íbúaþinginu munu íbúar ráða ferðinni og taka þau mál til umræðu sem hugur þeirra stendur til. Í lok þingsins gefst þeim tækifæri til að forgangsraða málefnum út frá þeim umræðum sem fram hafa farið á þinginu. Einnig gefst tækifæri til að velja heiti á verkefnið en ávallt hafa íbúar þátttökubyggðarlaga valið lýsandi og jákvætt heiti fyrir sitt byggðaþróunarverkefni.

Það er reynsla þeirra sem hafa af hálfu Byggðastofnunar tekið þátt í verkefnum Brothættra byggða víða um land, að íbúaþingin séu gullið tækifæri fyrir íbúa til að ráða ráðum sínum og viðra hugmyndir sem eru til þess fallnar að styrkja viðkomandi samfélög. Skilaboð frá íbúaþinginu verða mikilvægur efniviður í verkefnisáætlun Brothættra byggða á Tálknafirði næstu árin.

Þingin hafa ávallt verið afar ánægjulegir viðburðir og ekki sakar að ljúffengar veitingar verða á boðstólnum. Þátttakendur geta setið allt þingið eða hluta þess eftir því sem tími og áhugi leyfa.

Vonast er til þess að sem allra flestir íbúar og aðrir velunnarar Tálknafjarðar mæti til leiks á íbúaþingið.

Verkefnið Brothættar byggðir er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar, C.2, og markmið þess er að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Verkefnið byggir á samstarfi Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags, landshlutasamtaka og síðast en ekki síst íbúa hvers þátttökubyggðarlags. Því er einkum ætlað að styðja við frumkvæði og þátttöku íbúa til hagsbóta fyrir samfélagið í víðum skilningi.

Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389