Fréttir
Yfir helmingur atvinnutekna í Vestur-Skaftafellssýslu úr ferðaþjónustu
Árið 2025 voru heildartekjur einstaklinga með lögheimili á Íslandi 3.099 milljarðar króna, 3,7% hærri en árið 2024, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga. Atvinnutekjur voru 69% af öllum tekjum einstaklinga, lífeyrisgreiðslur 11%, fjármagnstekjur 11%, bætur frá TR og Sjúkratryggingum 7%, atvinnuleysisgreiðslur 1%, fæðingarorlofsgreiðslur 0,8%, fjárhagsaðstoð sveitarfélaga 0,2% og aðrar staðgreiðsluskyldar greiðslur 0,5%.
Þetta kemur meðal annars fram í nýrri skýrslu Byggðastofnunar, Tekjur einstaklinga eftir svæðum 2008-2025. Samhliða útgáfunni hefur samnefnt mælaborð verið uppfært, en þar er hægt að rýna enn frekar í niðurstöður. Gögnin í greiningunni koma frá Hagstofu Íslands.
Ferðaþjónusta með yfir 50% hlutdeild í tveimur sveitarfélögum
Heildaratvinnutekjur í einkennandi greinum ferðaþjónustu voru 238 milljarðar króna árið 2025 og hafa aldrei verið hærri. Atvinnutekjur í ferðaþjónustu samsvöruðu um 11% allra atvinnutekna landsmanna.
Vægi ferðaþjónustu er mjög mismunandi eftir svæðum. Hæst var hlutdeild hennar í Mýrdalshreppi, þar sem 57% atvinnutekna íbúa komu úr einkennandi greinum ferðaþjónustu árið 2025, og næsthæst í Skaftárhreppi, þar sem hlutdeildin var 52%.
Hlutdeild greinarinnar var jafnframt 40% í Bláskógabyggð, 38% í Eyja- og Miklaholtshreppi og 30% í Reykjanesbæ. Þá var hlutdeild ferðaþjónustu yfir 20% af heildaratvinnutekjum í Sveitarfélaginu Hornafirði, Þingeyjarsveit, Suðurnesjabæ og Rangárþingi eystra.
Atvinnutekjur jukust mest á Suðurlandi
Heildaratvinnutekjur námu 2.140 milljörðum króna árið 2025. Það eru um 5,5 milljónir á hvern íbúa landsins eða 10,1 milljón á hvern launþega.
Atvinnutekjur jukust í öllum landshlutum árið 2025 nema á Suðurnesjum, þar sem þær drógust saman um 0,8%. Mest jukust atvinnutekjur á Suðurlandi 6,8% og næstmest á Vesturlandi 4,9%. Atvinnutekjur á íbúa voru áfram hæstar á Austurlandi og höfuðborgarsvæðinu, eða 5,7 milljónir króna.
Mikill munur á hlutdeild atvinnugreina eftir landshlutum
Hlutdeild atvinnugreina í atvinnutekjum er töluvert ólík milli landshluta. Hlutdeild opinbera geirans var hæst á Norðurlandi vestra árið 2025, þar sem atvinnugreinar hans stóðu fyrir 40% heildaratvinnutekna, en lægst á Suðurnesjum 22%.
Framleiðsla án fiskvinnslu var hlutfallslega mikilvægust á Austurlandi og Vesturlandi, þar sem hún stóð fyrir 18% og 17% atvinnutekna. Fiskveiðar og fiskvinnsla voru hins vegar hlutfallslega mikilvægastar á Vestfjörðum, þar sem hlutdeild sjávarútvegs í heildaratvinnutekjum var 21%. Á Austurlandi var hlutdeildin 18% og á Vesturlandi 13%.
Hlutdeild flutninga og geymslu var langhæst á Suðurnesjum, eða 19% heildaratvinnutekna. Rekstur gisti- og veitingastaða var mikilvægastur á Suðurlandi, þar sem hlutdeild greinarinnar var 10%.

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

