Fara í efni  

Fréttir

Hvert sækja íbúar landsbyggðanna vinnu og þjónustu?

Hvert sækja íbúar landsbyggðanna vinnu og þjónustu?
Mynd úr skýrslu: Þjónustusókn frá Vestfjörðum

Byggðastofnun hefur birt nýja skýrslu um vinnu- og þjónustusókn íbúa landsins. Skýrslan byggir á þjónustukönnun sem framkvæmd var árið 2024 meðal tæplega sjö þúsund íbúa utan höfuðborgarsvæðisins og gefur ítarlega mynd af því hvar íbúarnir sækja vinnu og ýmsa þjónustu.

Niðurstöður sýna meðal annars að verulegur munur er á milli svæða, á því að hve miklu leyti íbúar sækja vinnu og þjónustu út fyrir sitt nærsvæði. Á sumum stöðum fer daglegt líf að mestu fram í heimabyggð en annars staðar er samspil við nærliggjandi þjónustu- og atvinnukjarna meira áberandi.

Mikil vinnu- og þjónustusókn er oft til stærri bæja frá nálægum þorpum og dreifbýli, en á minni stöðum sem eru landfræðilega einangraðri sinna íbúar hins vegar erindum sínum oftar í heimabyggð.

Hlutverk stærri bæja

Stærstu bæirnir gegna mikilvægu hlutverki sem miðstöðvar verslunar og sérhæfðrar þjónustu fyrir nálæg svæði. Höfuðborgarsvæðið gegnir til að mynda mikilvægu hlutverki fyrir íbúa margra búsetusvæða á Vestfjörðum, Vesturlandi, Suðurnesjum og Suðurlandi. Akureyri hefur sambærilegt hlutverk á stóru svæði, allt frá Norðurlandi vestra til Austurlands. Þá eru Egilsstaðir, Reykjanesbær, Ísafjörður og Selfoss meðal staða sem eru mikilvægir þjónustukjarnar fyrir stóran hluta íbúa sinna landshluta.

Dagvöruverslun algengasti þjónustuþátturinn

Dagvöruverslun er langumfangsmesti þjónustuþátturinn í daglegu lífi íbúa. Lágvöruverðsverslun og önnur dagvöruverslun standa saman fyrir um 42% allrar þjónustusóknar. Þar á eftir koma meðal annars sund og baðstaðir, líkamsrækt og lyfjaverslun, en alls var þjónustusókn greind eftir 31 þjónustuþætti.

Um fjórðungur sækir vinnu út fyrir sitt búsetusvæði

Könnunin sýnir einnig að vinnusókn milli svæða er töluverð. Um fjórðungur svarenda sem eru í vinnu sækir vinnu að einhverju leyti út fyrir sitt búsetusvæði og um fimmtungur gerir það þrisvar sinnum í viku eða oftar. Hlutfallið er mjög mismunandi eftir landshlutum, allt eftir samgöngum og nálægð við stærri atvinnukjarna.

Niðurstöður greindar fyrir yfir hundrað búsetusvæði

Í greiningunni er landinu skipt í 101 búsetusvæði sem byggja á póstnúmerum svarenda. Niðurstöður eru greindar fyrir hvert þeirra. Búsetusvæðin tilheyra alls 69 þjónustusvæðum sem eru skilgreind út frá þjónustusókn og meðal annars metið hversu stór hluti þjónustusóknar íbúanna fer fram innan eigin þjónustusvæðis.

Fyrri skýrslan af tveimur

Skýrslan um vinnu- og þjónustusókn er sú fyrri af tveimur um þjónustukönnun Byggðastofnunar. Síðari skýrslan, sem fjallar um viðhorf íbúa til þjónustu og væntingar til breytinga á þjónustuframboði, verður birt síðar á þessu ári.

Þjónustukannanir eru mikilvægur liður í að fylgjast með aðgengi íbúa að þjónustu og styðja við stefnumótun í byggðamálum. Samkvæmt stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036 er markmið stjórnvalda að jafna aðgengi að þjónustu og stuðla að sjálfbærri þróun byggða.


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389