Fréttir
Vel sóttur íbúafundur á Reykhólum
Íbúar Reykhólahrepps fjölmenntu á fyrsta íbúafundinn sem haldinn var í gær, 19. júní, undir merkjum byggðaþróunarverkefnisins Fjársjóður fjalla og fjarða. Frá því að tveggja daga íbúaþing var haldið í byggðarlaginu í mars sl. hefur verkefnisstjórn unnið að mótun svokallaðrar verkefnisáætlunar sem byggð er á grunni skilaboða íbúa frá íbúaþinginu og stöðugreiningu verkefnisstjórnar. Í verkefnisáætluninni er framtíðarsýn íbúa birt, meginmarkmið undirstrika meginviðfangsefni í verkefninu og í tengslum við hvert meginmarkmið eru skilgreind fjölmörg starfsmarkmið með nánari útfærslu viðfangsefna. Verkefnisáætlunin verður leiðarljósið á framkvæmdatíma Fjársjóðs fjalla og fjarða næstu fimm árin. Drög að verkefnisáætluninni voru kynnt á fundinum og fulltrúar heimamanna í verkefnisstjórn þau, Guðlaug, Hrefna, Vésteinn og Embla Dögg kynntu nokkur starfsmarkmið í verkefnisáætlun. Því næst var fundargestum skipt í hópa þar sem verkefnisáætlunin var rýnd og íbúum gafst tækifæri til að koma með ábendingar eða viðbætur við drögin.
Hrefna Jónsdóttir, fulltrúi sveitarstjórnar í verkefnisstjórn, stýrði fundinum og að afloknum hópaumræðum fékk hún umboð frá fundinum um að verkefnisstjórn gæti lokið við verkefnisáætlunina, að teknu tilliti til ábendinga frá íbúum og gefið hana út opinberlega. Þegar verkefnisáætlun hefur verið gefin út í endanlegri mynd færist verkefnið jafnframt í framkvæmdaáfanga skv. verkefnislýsingu Brothættra byggða. Reikna má með að það verði fyrir lok þessa mánaðar.
Frumkvæðissjóður Fjársjóðs fjalla og fjarða
Embla Dögg Bachmann verkefnisstjóri og Helga Harðardóttir fulltrúi Byggðastofnunar kynntu fyrirkomulag umsóknar- og úthlutunarferlis Frumkvæðissjóðs Fjársjóðs fjalla og fjarða. Ákveðið hefur verið að sjóðurinn opni fyrir umsóknir þriðjudaginn 1. júlí nk. og að tekið verði við umsóknum til kl. 16:00 miðvikudaginn 20. ágúst nk. Aðalsteinn Óskarsson, fulltrúi Vestfjarðastofu, tók til máls undir þessum lið og greindi frá stuðningsneti Vestfjarðastofu inn í verkefnið. Þar starfar öflugur hópur sérfræðinga sem geta verið verkefnisstjóra og íbúum innan handar við hvers kyns viðfangsefni. Fundinn ávarpaði einnig fyrir hönd Byggðastofnunar, Kristján Þ. Halldórsson, sem setti fundinn og hvatti íbúa til virkrar þátttöku í verkefninu.
Niðurstöður íbúakönnunar
Í lok fundarins kynntu þau Helga og Kristján niðurstöður íbúakönnunar sem lögð var fyrir íbúa í Reykhólahreppi í lok árs 2024 og var opin fram á nýtt ár 2025. Niðurstöðurnar voru um margt jákvæðar en í könnuninni voru fjölmargar spurningar settar fram um viðhorf íbúa til samfélags síns. Niðurstöður könnunarinnar má skoða hér.
Sannarlega má segja að þátttaka og virkni íbúa í verkefninu Fjársjóður fjalla og fjarða í upphafi verkefnis gefi góð fyrirheit um það sem fram undan er. Það verður m.a. spennandi að sjá hverjar viðtökur verða þegar verkefnisáætlunin tekur gildi og opnað verður fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóð Fjársjóðs fjalla og fjarða til hvers kyns frumkvæðisverkefna. Fyrir íbúafund gafst verkefnisstjórn kostur á að skoða nýjar íbúðir sem verið er að leggja lokahönd á á Reykhólum í þremur nýjum raðhúsum.
Hér má sjá myndir sem teknar voru á íbúafundinum. Myndasmiður var Kristján Þ. Halldórsson.
Vésteinn, Guðlaug, Hrefna og Embla Dögg kynna starfsmarkmið í verkefnisáætlun.
Frá íbúafundi í Reykhólahreppi 19. júní 2025.
Embla Dögg og Helga kynna Frumkvæðissjóð Fjársjóðs fjalla og fjarða.
Verkefnisstjórn FFF í einni af nýju íbúðunum sem verið er að leggja lokahönd á á Reykhólum.
Nánari upplýsingar veita Helga Harðardóttir og Kristján Þ. Halldórsson, umsjónaraðilar Brothættra byggða hjá Byggðastofnun
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember