Fara í efni  

Fréttir

Drög að endurskoðaðri byggðáætlun í samráðsgátt

Hvítbók um byggðamál, drög að stefnumótandi byggðaáætlun til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára, hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Almenningur og haghafar hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar um hvítbókina en skilafrestur er til og með 31. maí næstkomandi. Að afloknu samráði verður tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun til fimmtán ára og aðgerðaáætlun til fimm ára lögð fyrir Alþingi.

Lögum samkvæmt skal leggja fram endurskoðaða áætlun á að minnsta kosti þriggja ára fresti en í júní verða þrjú ár liðin frá samhljóma samþykkt Alþingis á gildandi byggðaáætlun.

Vinna við endurskoðun byggðaáætlunar hófst með samráðsfundi í Hafnarfirði í júní 2020 og grænbók (stöðumat) var lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda í desember sl. Samráð og samhæfing áætlana hafa verið leiðarljós í vinnu við endurskoðun áætlunarinnar og meðal annars falist í fjölda funda sem haldnir hafa verið, bæði í aðdraganda grænbókar og hvítbókar, með öllum landshlutasamtökum sveitarfélaga, Sambandi ísl. sveitarfélaga, fulltrúum allra ráðuneyta og fleirum. Við endurskoðunina er sérstaklega horft til kynja- og jafnréttissjónarmiða enda mikilvægt að búsetuskilyrði allra um land allt séu styrkt eins og kostur er. 

Byggðaáætlun lýsir stefnu ríkisins í byggðamálum hverju sinni og samhæfingu við aðra stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera. Skv. lögum skal byggðaáætlun hafa að meginmarkmiði að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðalaga um land allt. Sérstök áhersla skal lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.

Að beiðni samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra hefur Byggðastofnun haft virka aðkomu að endurskoðunarvinnunni, enda áætlunin mikilvægt tæki til að vinna að þeim markmiðum sem stofnuninni eru sett í lögum. 

Hvítbók í samráðsgátt


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389