Fara í efni  

Fréttir

Evrópusamvinna á Háskólatorgi 14. janúar 2010

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 14. janúar 2010  kl. 15-18. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs.


Sameiginlegur upplýsingavefur landsskrifstofa og þjónustuskrifstofa Evrópuáætlana er evropusamvinna.is. Þar má finna grunnupplýsingar um allar þær áætlanir og styrkjamöguleika sem Íslendingum bjóðast ásamt tenglum í viðeigandi heimasíður. Vefsíðunni er ætlað að vera fyrsti áfangastaður fyrir þá sem hafa áhuga á Evrópusamstarfi, hvort sem það er til að sækja um styrki eða leita sér upplýsinga og þjónustu, en vita e.t.v. ekki hvert þeir eiga að snúa sér.

Íslendingar hafa aðgang að fjölda Evrópuáætlana í gegnum EES samninginn og hafa verið virkir í Evrópusamstarfi allt frá því hann tók gildi. Í gegnum samstarfsáætlanir Evrópusambandsins er hægt að sækja styrki og stuðning innan flestra sviða menntunar og atvinnulífs og má þar telja áætlanir á sviði menntunar á öllum stigum, menningar, rannsókna og vísinda, jafnréttis, vinnumiðlunar og fyrirtækjasamstarfs. Einstaklingar, skólar, fyrirtæki, stofnanir og samtök finna eitthvað við sitt hæfi á Evrópusamvinnukynningunni á Háskólatorgi.

Þjónusta og áætlanir sem kynntar verða á Háskólatorgi eru:

  • 7. rannsóknaáætlun ESB 
  • Menntaáætlun ESB 
  • eTwinning rafrænt skólasamstarf 
  • Evrópa unga fólksins 
  • Evróvísir - tækifæri fyrir ungt fólk 
  • EURES - evrópsk vinnumiðlun 
  • Menningaráætlun ESB 
  • MEDIA kvikmynda-, sjónvarps- og margmiðlunaráætlun 
  • Enterprise Europe Network 
  • Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun ESB 
  • Norðurslóðaáætlun 
  • NORA - norræna Atlantssamstarfið 
  • ESPON samstarfsnet um svæðaþróun 
  • PROGRESS - jafnréttis og vinnumál 
  • Daphne III - gegn ofbeldi á konum og börnum 
  • Almannavarnaáætlun
  • Norrænt samstarf og styrkir

Byggðastofnun kynnir á Háskólatorgi 14. janúar 2010 kl. 15-18 Norðurslóðaáætlun (Northern Periphery Programme), ESPON 2013 samstarfsnet um svæðaþróun og Norræna Atlantssamstarfið NORA


Til baka

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Ártorg 1  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-16:00  | kt. 450679-0389