Fara í efni  

Fréttir

Eyrarrósin 2007

Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands standa saman að Eyrarrósinni, viðurkenningu sem veitt er árlega einu afburða menningarverkefni á landsbyggðinni, á starfssvæði Byggðastofnunar.

Viðurkenning til frammúrskarandi menningarstarfs á landsbyggðinni

10.10.2006

Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands standa saman að Eyrarrósinni, viðurkenningu sem veitt er árlega einu afburða menningarverkefni á landsbyggðinni, á starfssvæði Byggðastofnunar. Fyrstu Eyrarrósina, sem afhent var árið 2005, hlaut Þjóðlagahátíðin á Siglufirði og Eyrarrósina 2006 hlaut LungA, listahátíð ungs fólks, Austurlandi.

  •  
    • Úthlutunarnefnd tilnefnir þrjú verkefni úr hópi umsækjenda um Eyrarrósina 2007
    • Eitt þeirra hlýtur viðurkenninguna, kr. 1.500.000 og verðlaunagrip til eignar
    • Viðurkenningin verður afhent í ársbyrjun 2007 á Bessastöðum
    • Verkefnið sem hlýtur viðurkenninguna fær sérstaka kynningu í tengslum við Listahátíð í Reykjavík 2007
    • Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff forsetafrú

HÉR MEÐ ER AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM UM EYRARRÓSINA 2007

UMSÓKNUM SKAL FYLGJA:

Lýsing á verkefninu

Lögð skal fram greinargóð lýsing á verkefninu; umfangi þess, sögu og markmiðum.

Tíma- og verkáætlun

Gerð skal grein fyrir stöðu og áætlaðri framvindu verkefnisins og áformum á árinu 2007. Skilyrði er að verkefninu hafi nú þegar verið hleypt af stokkunum.

Upplýsingar um aðstandendur

Lagðar skulu fram ítarlegar upplýsingar um helstu aðila sem að verkefninu standa og gerð grein fyrir þeirra þætti í því.

Fjárhagsáætlun

Tilgreina skal tekjur og gjöld verkefnisins á þessu ári.
Uppgjör ársins 2005 fylgi umsókn.

  1.  
    1. Ef umsókn fylgja ekki ofangreindar upplýsingar verður hún ekki tekin til greina
    2. Umsækjendur geta verið m.a. stofnun, safn, tímabundið verkefni eða menningarhátíð
    3. Umsóknarfrestur er til 13. nóvember 2006 og verður öllum umsóknum svarað
    4. Viðurkenningin verður veitt í janúar 2007
    5. Umsóknir skal senda til Listahátíðar í Reykjavík, pósthólf 88, 121 Reykjavík, merktar Eyrarrósin

Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík í síma 561 2444, hrefna@artfest.is

http://www.listahatid.is/


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389