Fara í efni  

Fréttir

Eyrarrósin afhent á Bessastöðum

Eyrarrósin er sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni sem veitt verður á Bessastöðum fimmtudaginn 20. janúar.

  Eyrrarósin er sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni sem veitt verður á Bessastöðum fimmtudaginn 20. janúar.

Þrjú verkefni hafa verið valin úr hópi fjölmargra umsækjenda og verða þau kynnt sérstaklega á Bessastöðum, en eitt þeirra hlýtur Eyrarrósina; fjárstyrk að upphæð kr. 1.5 milljón og verðlaunagrip eftir Steinunni Þórarinsdóttur til eignar.

Viðkenninguna og verðlaunagripinn afhendir Dorrit Moussaieff forsetafrú, en hún er jafnframt verndari  Eyrarrósarinnar.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra flytur ávarp við athöfnina.

Verkefnin sem hlutu tilnefningu eru:
      Aldrei fór ég suður, rokkhátíð alþýðunnar á Ísafirði 
      Listahátíðin Á seyði á Seyðisfirði
      Þjóðlagahátíðin á Siglufirði

Viðurkenningin á rætur sínar í því að fyrir tæpu ári gerðu Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands með sér samkomulag um eflingu menningarlífs á landsbyggðinni og undirrituðu Þórunn Sigurðardóttir, stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, Aðalsteinn  Þorsteinsson forstjóri Byggðastofnunar og Jón Karl Ólafsson forstjóri Flugfélags Íslands samning þess efnis 30. apríl 2004.

Markmiðið með samkomulaginu er að stuðla að auknu menningarlífi á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta, gefa íbúum landsins kost á afburða alþjóðlegum listviðburðum og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu: Liður í samkomulaginu er stofnun Eyrarrósarinnar sem veitt er afburða menningarverkefni á landsbyggðinni, starfssvæði Byggðastofnunar.

Auglýst var eftir umsóknum í dagblöðum og landsmálablöðum og voru umsækjendur  m.a. stofnanir, söfn, tímabundin verkefni og menningarhátíðir.
Verkefnisstjórn, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðastofnunar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefndu og völdu verðlaunahafa.

Heimild Listahátíð í Reykjavík artfest.is


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389