Fara í efni  

Fréttir

Eyrarrósin afhent á Bessastöðum á morgun

Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent á Bessastöðum á morgun, miðvikudag 21. febrúar kl. 16.00 og er það í þriðja sinn sem viðurkenningin er veitt.

20.2.2007

Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd úr hópi fjölmargra umsækjenda. Eitt þeirra hlýtur Eyrarrósina; fjárstyrk að upphæð  kr. 1.5 milljón og verðlaunagrip eftir Steinunni Þórarinsdóttur til eignar og hin tvö hljóta 200 þúsund króna framlag. Öll verkefnin hljóta að auki tíu flugferðir frá Flugfélagi Íslands.

Verðlaunin veitir Dorrit Moussaieff forsetafrú, sem jafnframt er verndari Eyrarrósarinnar.

Tilnefnd til Eyrarrósarinnar 2007 eru:

Safnasafnið
Sérstaða Safnasafnsins í íslensku safna- og sýningarhaldi er óumdeild, en safnið er hið eina sinnar tegundar á Íslandi. Með metnaðarfullu starfi árum saman hefur tekist að  skapa einstakan ramma utan um alþýðulist, nýrri list og handverk af ýmsu tagi. Sýningar safnsins hafa borið faglegum metnaði gott vitni og sérstök verkefni safnsins og sýningar stefna saman ýmsum listastefnum og tvinna saman starf hámenntaðra listamanna og áhugafólks. Frumkvæði einstaklinga í þessu einstaka safni er aðdáunarvert og einstök.

Sumartónleikar í Skálholtskirkju

Um langt árabil hafa Sumartónleikar í Skálholtskirkju verið ein glæsilegasta tónlistarhátíð landsins. Allt frá árinu 1975 hefur verið fluttur þar fjöldi innlendra og erlendra tónverka með fremstu flytjendum landsins. Erlendum þátttakendum og gestum Sumartónleikanna fjölgar ár frá ári og fjölbreytni og umfang að sama skapi. Mörg ný verk hafa verið frumflutt á hátíðinni sem og áður óþekkt eldri verk. Hátíðin hefur skapað sér sess sem elsta og jafnframt stærsta sumartónlistarhátíð landsins og er sérstaklega aðdáunarvert að aðgangur að tónleikum í Skálholtskirkju er ókeypis.

Strandagaldur
Strandagaldur stendur að fjölbreyttum verkefnum og sýningum á sviði þjóðfræði og sýningarhalds og hefur frá því að það var opnað vakið verðskuldaða athygli innanlands og utan. Sérstaða svæðisins er nýtt til að draga fram íslenska þjóðtrú og sögu og óhætt er að fullyrða að verkefnið á sér enga hliðstæðu.

Metnaður og fagþekking eru höfð að leiðarljósi. Starfsemin hefur jákvæð áhrif á byggðaþróun og uppbyggingu atvinnulífs héraðsins sem aftur styrkir stoðir þess og dregur athygli ferðamanna að því. Rík þátttaka heimafólks í starfinu er til fyrirmyndar.

Nýr samningur undirritaður

Fyrir rúmu ári féllu verðlaunin í skaut LungA ?listahátíðar ungs fólks, Austurlandi en árið 2005 hlaut Þjóðlagahátíðin á Siglufirði Eyrarrósina.

Eyrarrósin á rætur sínar í því að árið 2004 gerðu Listahátíð í Reykjavík, Byggðarstofnun og Flugfélag Íslands með sér samkomulag um eflingu menningarlífs á landsbyggðinni til þriggja ára í tilraunaskyni. Afar vel hefur tekist til og því hefur verið ákveðið endurnýja samstarfið. Verður nýr samningur um samstarfið undirritaður á Bessastöðum.

Markmiðið með Eyrarrósinni er að stuðla að auknu menningarlífi á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Eyrarrósin er veitt einu afburða menningarverkefni á starfssvæði Byggðarstofnunar.

Auglýst var eftir umsóknum í fjölmiðlum og voru umsækjendur m.a. ýmis tímabundin verkefni, menningarhátíðir, stofnanir, söfn.

Verkefnisstjórn, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðarstofnunnar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefna og velja verðlaunahafa.

Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík, Hrefna Haraldsdóttir, í hrefna@artfest.is, eða í síma 561-2444 og/eða kynningarstjóri Listahátíðar, Guðrún Kristjánsdóttir í gudrun@artfest.is eða í síma 891-9683.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389