Fara í efni  

Fréttir

Fjögur verkefni á sviði almenningssamgangna fá úthlutað 27 milljónum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki til almenningssamgangna á milli byggða. Alls bárust sjö umsóknir um styrki að fjárhæð rúmar 74 milljónir. Að þessu sinni er 27 milljónum króna úthlutað til fjögurra verkefna.

Um er að ræða aðgerð A.10 á byggðaáætlun, Almenningssamgöngur milli byggða. Markmið með aðgerðinni að styðja við þróun almenningssamgangna milli byggða, m.a. til að  tengja við ýmsa sérakstursþjónustu. 

Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknir og gerði tillögur til ráðherra. Verkefnin sem hljóta styrk eru: 

Tilraunaverkefni um almenningssamgöngur milli Borgarfjarðar eystra og Egilsstaða. Umsækjandi: Múlaþing. Styrkur: 17 m.kr. Sveitarfélagið Múlaþing sækir um tilraunaverkefni til tveggja ára á akstursleiðinni Borgarfjörður eystri – Egilsstaðir þar sem fólks- og farmflutningar munu fylgjast að. Verkefnið er viðbragð við ákvörðun Vegagerðarinnar í júní 2024 um að leggja niður almenningssamgöngur milli þessara tveggja byggðakjarna. Bíllinn mun jafnframt flytja póst frá póstmiðstöð á Egilsstöðum og sinna vöruflutningum. Framlagið er veitt til fólksflutninga hlutans.

Tómstundaakstur barna í Húnabyggð. Umsækjandi: Húnabyggð. Styrkur: 5 m.kr. Húnabyggð er víðfeðmt og dreifbýlt sveitarfélag þar sem margir íbúar búa fjarri helsta þjónustukjarna. Því er aðgengi barna og ungmenna að íþrótta- og tómstundastarfi á Blönduósi oft háð því að foreldrar hafi tök á að aka þeim á íþróttaæfingar og í tómstundir. Þetta skapar ójöfn tækifæri eftir búsetu og getur hamlað virkri þátttöku barna í félagslífi. Til að bregðast við þessu sækir Húnabyggð um styrk til að þróa og efla almenningssamgöngur á milli byggðarlaga innan sveitarfélagsins, með áherslu á samgöngur fyrir börn og ungmenni.

Brúin um Borgarfjörð. Umsækjandi: Borgarbyggð. Styrkur: 2,8 m.kr. Tilgangurinn með þessu verkefni er að halda áfram að efla og festa í sessi almenningssamgöngur í Borgarfirði og tryggja jafnræði, sér í lagi meðal barna í sveitarfélaginu til þess að sækja nám, íþrótta- og menningarstarfsemi sem og aðra þjónustu í Borgarnesi. Verkefnið er framhald af tilraunaverkefni sem hlaut styrk árið 2021.

Fýsileikakönnun um samþættan sérakstur og almenningssamgöngur í Árnessýslu. Umsækjandi: Samband sunnlenskra sveitarfélaga. Styrkur: 2,2 m.kr. Tilgangur verkefnisins er að gera fýsileikakönnun svo hægt sé að greina þarfir og kortleggja almenningssamgöngur og tómstundaakstur í Árnessýslu með tilliti til barna- og unglingastarfs sem og fyrir eldri borgara sem þurfa að sækja þjónustu. Auk þess er áhugi á því að kanna þann möguleika að samræma tímaáætlanir við skólastarf framhaldsskólanna, annars vegar Menntaskólann að Laugarvatni og hins vegar Fjölbrautarskóla Suðurlands. Markmið verkefnisins er að fjölga möguleikum fyrir íbúa í Árnessýslu til skóla, íþróttaiðkunar og sérhæfingar, tónlistarnáms og afþreyingar sem ekki er hægt að sækja í heimabyggð.

Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknirnar og gerði tillögur til ráðherra. Í valnefnd sátu þau Sigurður Árnason, sérfræðingur á Byggðastofnun, sem jafnframt er formaður, Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Ferðamálastofu og Snorri Björn Sigurðsson fyrrverandi forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun innviðaráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036.

Frétt af vef Stjórnarráðsins


Til baka

Fréttasafn

2025
janúar febrúar mars apríl maí
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389