Fara í efni  

Fréttir

Flutningsjöfnunarstyrkir vegna sölu olíuvara fyrir árið 2022

Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um flutningsjöfnunarstyrki vegna sölu olíuvara til söluaðila sem starfrækja sölustaði á svæðum sem búa við skerta samkeppnisstöðu vegna landfræðilegra og lýðfræðilegra aðstæðna, skv. ákvæðum laga um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2023 og verður ekki tekið á móti umsóknum eftir þann tíma.

Styrkir eru veittir vegna olíuvara, ásamt tilheyrandi íblöndunarefnum, sem skiptast í eftirfarandi flokka:
Flokkur 1, bensín: Olíuvörur sem eru ætlaðar til notkunar sem eldsneyti fyrir vélknúin ökutæki.
Flokkur 2, gasolía: Gasolía sem er ætluð til notkunar fyrir vélknúin ökutæki, iðnað, til húshitunar og þess háttar.
Flokkur 3, gasolíutegundir fyrir skip og báta: Gasolíutegundir sem eru ætlaðar fyrir skip og báta.

Þrátt fyrir að eftirfarandi olíuvörur kunni að falla í ofangreinda flokka, eru þær ekki styrkhæfar:
       a. Olíuvörur sem eru ætlaðar til útflutnings, svo sem til millilandasiglinga og erlendra skipa.
       b. Olíuvörur sem ætlaðar eru flugvélum, svo sem flugvélabensín og flugvélaeldsneyti.

Umsóknir um flutningsjöfnunarstyrki skulu berast með útfyllingu á umsóknarskjali sem finna má neðst í þessari frétt. Í umsóknarskjalinu skal skrá nafn, kennitölu og lögheimili söluaðila auk upplýsinga um selt magn á árinu 2022 í hverjum flokki olíuvara á þeim sölustað sem sótt er um, sem nauðsynlegar eru til að ákvarða upphæð styrks. Þá skal einnig senda með umsókn eftirfarandi skjöl:

  1. Staðfesting á að umsækjandi skuldi ekki skatta eða gjöld til ríkis eða sveitarfélaga hér á landi
  2. Staðfesting að umsækjandi hafi ekki verið úrskurðaður gjaldþrota á næstliðnum fimm árum frá dagsetningu umsóknar (þeir umsækjendur sem hafa ekki sótt um áður þurfa að skila þessu)
  3. Staðfestingu á uppruna og lögmæti gagna um selt magn á sölustöðum.

Byggðastofnun leggur mat á umsóknir og getur kallað eftir gögnum umfram þeirra sem hér er getið um og eru nauðsynleg til að reikna út og staðfesta styrkveitingu.

Heildarfjárhæð styrkveitingar vegna ársins 2022 verður 175.000.000 kr. að frádregnum umsýslukostnaði Byggðastofnunar vegna úthlutunar. Því sem eftir stendur verður skipt á eftirfarandi hátt eftir flokkum skv. reglugerð 890/2021:

  • Flokkur 1: 25%
  • Flokkur 2: 45%
  • Flokkur 3: 30%

Úthlutun byggist á seldu magni sölustaðar í hverjum flokki fyrir sig m.t.t. til byggðastuðla sem finna má í 6. gr. reglugerðar nr. 890/2021. Einn sölustaður getur ekki fengið hærri flutningsjöfnunarstyrk en sem nemur 10% af heildarfjárhæð fyrirhugaðrar styrkveitingar í tilteknum viðmiðunarflokki olíuvara. 

Að öðru leyti fer úthlutun fram samkvæmt lögum nr. 160/2011 og reglugerð nr. 890/2021.

Hér má sækja umsóknarskjal til útfyllingar og HÉR má finna leiðbeiningar um útfyllingu skjalsins.

Umsóknir og aðrar fyrirspurnir berist á netfangið kristofer[hja]byggdastofnun.is.

 


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389