Fara í efni  

Fréttir

Grænbók um byggðamál í samráðsgátt

Grænbók um byggðamál í samráðsgátt
Vík í Mýrdal

Grænbók með stöðumati um byggðamál hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Útgáfa grænbókarinnar er liður í endurskoðun byggðaáætlunar sem stendur nú yfir. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hyggst leggja fram þingsályktunartillögu að nýrri stefnumótandi byggðaáætlun haustið 2026. Áætlunin felur í sér stefnu til fimmtán ára og aðgerðaáætlun til fimm ára.

Grænbókinni er ætlað að veita upplýsingar um núverandi stöðu byggðamála á Íslandi og vera grunnur að vinnu við þingsályktunartillögu, þar með talið aðgerðaáætlun. Í grænbókinni er leitast við að svara því hvernig gildandi byggðaáætlun hefur reynst og hverjar séu helstu áskoranir og tækifæri næstu 15 ára. Þá eru sett fram lykilviðfangsefni og lagðar til áherslur og leiðir til að fylgja þeim eftir.

Við gerð grænbókarinnar var lögð áhersla á samráð við hagaðila og almenning. Haldnir voru nokkrir fundir og boðið upp á opið samráð á vef Byggðastofnunar. Almenn sátt virðist ríkja um form og inntak byggðaáætlunar. Því eru ekki lagðar til miklar breytingar þar á. Tilgangurinn með því að leggja grænbókina í samráðsgátt stjórnvalda er fyrst og fremst að kalla eftir áliti á stöðumatinu, en ekki síður þeim lykilviðfangsefnum og áherslum sem þar eru sett fram.

Að loknu samráði verður unnið úr umsögnum og undirbúningur hafinn að ritun hvítbókar, sem felur í sér drög að stefnu og aðgerðum og er undanfari tillögu til þingsályktunar. Áætlað er að hvítbókin verði birt í samráðsgátt vorið 2026.

Frestur til að skila umsögnum og ábendingum um grænbókina í samráðsgátt er til og með 2. mars 2026.

Frétt af vef innviðaráðuneytisins

Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389