Fara í efni  

Fréttir

Heimsókn til Highlands and Islands Enterprise

Frá heimsókninni

Fulltrúar Byggðastofnunar heimsóttu Highlands and Islands Enterprise (HIE) á dögunum en starfsmenn HIE hafa aðstoðað stofnunina við undirbúning á tilraunaverkefni sem snýr að uppbyggingu atvinnuhúsnæðis á viðkvæmum svæðum.

HIE er opinber stofnun í eigu skoska ríkisins með starfssvæði um hálönd og eyjar Skotlands. Hlutverk HIE er sambærilegt hlutverki Byggðastofnunar en það er að hjálpa samfélögum og fyrirtækjum á starfssvæði stofnunarinnar að þróast og vaxa.

Tilgangur heimsóknarinnar var að skoða verkefni HIE á sviði uppbyggingar atvinnuhúsnæðis í viðkvæmum byggðarlögum, kynnast betur starfsemi þeirra og tengja stofnanirnar með von um aukið samstarf í framtíðinni. Þá fengu starfsmenn HIE einnig kynningu á starfsemi Byggðastofnunar og ljóst að áskoranirnar eru um margt líkar.

Á mynd frá vinstri: Stuart Black forstjóri HIE, Pétur Friðjónsson sérfræðingur hjá Byggðastofnun, Martin Johnson director of Strategy and Regional Economy, Arnar Már Elíasson forstjóri Byggðastofnunar, David Oxley director of Strategic Projects, Joanna Peteranna director of Area Operations og Hrund Pétursdóttir forstöðumaður fyrirtækjasviðs.

Til baka

Fréttasafn

2025
janúar febrúar mars apríl maí júní
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389