Fara í efni  

Fréttir

Nýsköpun um allt land á Iceland Innovation Week

Í síðustu viku fór hin árlega nýsköpunarhátíð Iceland Innovation Week fram í Reykjavík. Á hátíðinni kemur saman fjölbreytt flóra fólks og fyrirtækja sem starfar innan nýsköpunar- og frumkvöðlasenunnar um allt land, auk hagaðila og annarra sem hafa brennandi áhuga á nýsköpun. Hátíðin er einnig vel sótt af erlendum fjárfestum, frumkvöðlum og fræðimönnum svo hér er um að ræða líflegan suðupott nýsköpunar, tækni og framþróunar.

Á viðburði sem þessum er mikilvægt að sú kraftmikla nýsköpun sem á sér stað utan höfuðborgarsvæðisins sé vel sýnileg. Í ár tóku landshlutasamtökin höndum saman, í samstarfi við Byggðastofnun, og stóðu fyrir sérstökum hliðarviðburði í Grósku þar sem öflugir frumkvöðlar frá öllum landshlutum létu ljós sitt skína með stuttum, hressandi og fjölbreyttum erindum.

Mörg þeirra sem áttu sviðið höfðu tekið þátt í nýsköpunarhraðlinum Startup Landið á síðasta ári, en hraðallinn er ætlaður frumkvöðlum um land allt og er leiddur áfram af landshlutasamtökunum. Startup Landið verður haldið í annað sinn í ár og hefur þegar opnað fyrir umsóknir. Einnig tóku til máls fulltrúar verkefna og fyrirtækja sem notið hafa stuðnings landshlutasamtaka í sínu héraði, ýmist í gegnum ráðgjöf eða styrkveitingar úr Uppbyggingarsjóði.

Markmið viðburðarins var fyrst og fremst að varpa ljósi á þá fjölbreyttu nýsköpun sem á sér stað víðsvegar um landið og þann síaukna kraft sem býr í nýsköpunarumhverfi landsbyggðarinnar, ekki síst fyrir tilstilli landshlutasamtakanna. Það er mikilvægt er að nýta vettvang sem þennan til að beina sjónum fólks einnig út fyrir höfuðborgarsvæðið, þar sem tækifærin til nýsköpunar, verðmætasköpunar og framþróunar eru sannarlega á hverju strái.

Nokkuð hefur skort á sýnileika landsbyggðarinnar á Iceland Innovation Week fram til þessa, en með samhentu átaki landshlutasamtakanna og Byggðastofnunar er ætlunin að breyta því. Landsbyggðin á fullt erindi inn í samtalið um framtíð nýsköpunar á Íslandi og á að fá þar sinn verðuga sess héðan af.

Á heimasíðu Austurbrúar má nálgast skemmtilegt viðtal við Margréti Pollý Hansen, einni af verkefnastjórum Startup landið og byggðaþróunarfulltrúa hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), þar sem hún ræðir viðburðinn á Nýsköpunarvikunni, Startup landið og sýnileika nýsköpunar á landsbyggðinni.


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389