Fara í efni  

Fréttir

Ísland þátttakandi í NPP og NORA

Ísland hefur gerst aðili að Norðurslóðaáætlun ESB (Northern Periphery Programme - NPP). Norðurhéruð Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og Skotlands, ásamt Færeyjum og Grænlandi eiga einnig aðild að áætluninni sem er ætlað að stuðla að samstarfsverkefnum sem miða að því að finna lausnir og/eða stunda rannsóknir á sameiginlegum viðfangsefnum norðurslóða. Áherslur verkefna geta verið af þrennum toga. Í fyrsta lagi verkefni tengd samgöngu- og fjarskiptamálum, í öðru lagi verkefni tengd atvinnuþróun og vistvænni nýtingu náttúruauðlinda og í þriðja lagi verkefni tengd eflingu samfélaga á norðurslóðum. Nú þegar eru íslenskir aðilar þátttakendur í sjö verkefnum af átján innan áætlunarinnar. Ísland tekur einnig þátt í störfum NORA, Norrænu Atlantsnefndarinnar. Nefndin heyrir undir Norrænu ráðherranefndina og telst hluti af norrænu samstarfi á sviði byggðamála og svæðasamvinnu. Starfssvæði NORA er Ísland, Færeyjar, Grænland og Norður- og Vestur- Noregur. NORA veitir styrki til samstarfsverkefna er tengjast þróun atvinnulífs, nýsköpun og rannsóknasamstarfi. Byggðastofnun hefur umsjón með NPP og NORA á Íslandi.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389