Fara í efni  

Fréttir

Kaldrananeshreppur, nýtt þátttökubyggðarlag í Brothættum byggðum

Horft yfir Steingrímsfjörð til Drangsness - KÞH

Kaldrananeshreppur er næsta byggðarlag sem hefja mun þátttöku í byggðaþróunarverkefninu Brothættar byggðir. Stjórn Byggðastofnunar samþykkti á fundi sínum þann 27. mars sl. að bjóða Kaldrananeshreppi til samstarfs í verkefninu.

Undirbúningur verkefnisins í Kaldrananeshreppi er hafinn

Undirbúningur er hafinn að verkefninu sem felur m.a. í sér að gerður hefur verið þríhliða samningur um verkefnið á milli Byggðastofnunar, Kaldrananeshrepps og Vestfjarðastofu. Eitt af næstu skrefum er væntanlega að auglýst verður eftir verkefnisstjóra til að leiða verkefnið. Það er Vestfjarðastofa sem annast ráðningarferlið og verður starfsmaðurinn jafnframt starfsmaður hennar. Eitt af fyrstu skrefum verkefnisins að öðru leyti verður að skipa verkefnisstjórn sem mun taka ákvarðanir um framkvæmd verkefnisins þ.m.t. undirbúning íbúaþings. Íbúaþingið er talið marka upphaf þátttöku íbúa í verkefninu. Vonast er til að hægt verði að halda slíkt íbúaþing í haust og í kjölfarið muni verkefnisstjóri og verkefnisstjórn móta verkefnisáætlun.

Sextánda byggðarlagið í Brothættum byggðum

Byggðarlagið er það sextánda í röðinni sem hefur þátttöku í Brothættum byggðum frá því að verkefnið hóf fyrst göngu sína á Raufarhöfn árið 2012. Gert er ráð fyrir að verkefnistíminn muni að óbreyttu vara í fimm ár þ.e. til loka árs 2030, en í samningum verði ákvæði um mögulega aðlögun verkefnisins þannig að vel fari saman Brothættar byggðir í Kaldrananeshreppi og verkefnið Strandaauður, ef til þess síðarnefnda kemur.

Til baka

Fréttasafn

2025
janúar febrúar mars apríl maí júní
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389