Fara í efni  

Fréttir

Kraftmikið upphaf Norðurslóðaáætlunar

Þriðji umsóknarfrestur Norðurslóðaáætlunar  opnar  20. júní og stendur til 26. september með ákvörðunardagsetningu 5. desember.  Opið verður  fyrir umsóknir í báðar áherslur áætlunarinnar sem eru: 1.       Nýsköpun og samkeppnishæfni 2.      Sjálfbær nýting náttúruauðlinda og samfélags.

Á fyrsta umsóknarfresti voru samþykkt 12  ný aðalverkefni með heildarverkefniskostnað að fjárhæð 13.6 milljónir evra og  eru Íslendingar þátttakendur  í 4 þessara verkefna, þau eru:

  • North Hunt, Sustainable Hunting Tourism Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, Rannsóknarsetur ferðaþjónustunnar, Veiðistjórnarsvið Umhverfisstofnunar.
  • NEED, Northern Environment Education Development Rannsóknasetur Háskóla Íslands, Höfn Hornafirði, Háskólasetrið Húsavík, Þjóðgarðurinn Jökulsárgljúfrum, Þróunarstofa Austurlands, Kirkjubæjarstofa, Þjóðgarðurinn Skaftafelli og sveitarfélögin Hornafjörður, Skaftárhreppur, Fljótsdalshérað og Norðurþing.
  • PELLETime – Solutions for competitive pellet production in medium size enterprices Héraðsskógar, Austurlandsskógar og Skógrækt ríkisins
  • Economuseum Northern Europe Fruman Nýheimum, Höfn Hornafirði og Fræðslunet Austurlands.

Á öðrum umsóknarfresti 7. mars 2008 bárust 14 umsóknir um ný aðalverkefni og eru þær nú í matsferli  og ákvörðunar að vænta 22. maí. Þeirra á meðal eru 6  umsóknir með íslenskri þátttöku en þau eru

  • Cold weather testing and training as an asset of the NPP region
  • The cooperation for safety in sparsely populated areas
  • Coastal Women Entrepreneur Businesses
  • Northern wild berry network
  • Our Life as Elderly- implementation
  • Sustainable Aquaculture of Arctic charr

Meðal umsækjenda má nefna Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga, Sjúkrahúsið Akureyri, Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands, Öldrunarheimili Akureyrar, Hafnarfjarðarbæ, Heilbrigðisstofnun Suðausturlands og Hólaskóla, Háskólann Hólum.

Alls hafa borist 20 forverkefnisumsóknir og þar af hafa verið samþykkt 10 verkefni, 7 hafnað og 3 eru í matsferli. Mikill fjöldi verkefnahugmynda eru síðan  á frumstigi umsóknaferils.  Forverkefni hafa þann megin tilgang að að vinna að gerð aðalumsókna, finna samstarfsaðila og hugsanlega fjármögnunaraðila aðalverkefna. Umsóknir  um forverkefni eru ekki bundnar neinum  sérstökum umsóknartíma.

Starfssvæði áætlunarinnar

Norðurslóðaáætlun 2007-2013  nær landfræðilega yfir mjög víðfeðmt svæði en þátttökulönd eru Evrópusambandslöndin,  Skotland, Norður Írland, Svíþjóð, Finnland og Írland auk Noregs, Íslands, Grænlands og Færeyja.   Frekari upplýsingar er að finna á heimsíðu Byggðastofnunar http://byggdastofnun.is/moya/page/npp

Tengiliður áætlunarinnar hérlendis:

Byggðastofnun
Þórarinn Sólmundarson
thorarinn@byggdastofnun.is


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389