Fara í efni  

Fréttir

Landstólpinn – árleg viðurkenning Byggðastofnunar

Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 25. maí nk. Á fundinum verður í fyrsta sinn veitt viðurkenning Byggðastofnunar undir heitinu „Landstólpinn. Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar“.

Viðurkenningin skal veitt einhverjum þeim sem hefur vakið jákvæða athygli á landsbyggðinni með verkefni, starfsemi, umfjöllun á opinberum vettvangi eða með öðru móti. Viðkomandi gæti bæði hafa vakið athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags.

Um getur verið að ræða einstakling, fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélag.

Við óskum eftir ábendingum um handhafa þessarar viðurkenningar. Að ábendingum fengnum mun dómnefnd velja úr. Eftirfarandi þætti skal hafa í huga við valið:

Hvort viðkomandi hafi:

  • Gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni eða viðkomandi svæði
  • Aukið virkni íbúa eða fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu
  • Orðið til þess að fleiri verkefni/ný starfsemi verði til
  • Dregið að gesti með verkefni eða umfjöllun sinni

Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar.

Ábendingum skal skila á heimasíðu Byggðastofnunar með því að fylla út formið hér.

Nánari upplýsingar gefur Sigríður K. Þorgrímsdóttir í síma 455 5400.

Frestur til að koma ábendingum til skila rennur út mánudaginn 16. maí 2011.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389