Fara í efni  

Fréttir

Líf, fjör og frumkvæði á Stöðvarfirði

Líf, fjör og frumkvæði á Stöðvarfirði
Frá úthlutunarhátíð á Stöðvarfirði

Stöðfirðingar hafa tekið þátt í verkefni Brothættra byggða af miklum krafti í á fimmta ár. Í síðustu viku fór fram úthlutunarhátíð þar sem úthlutað var í síðasta sinn úr Frumkvæðissjóði Sterks Stöðvarfjarðar til fjölbreyttra frumkvæðisverkefna og markaði úthlutunin því ákveðin tímamót í verkefninu. Að þessu sinni bárust samtals 20 umsóknir í sjóðinn og hlutu 18 verkefni brautargengi. Samtals voru til úthlutunar kr.14.950.000. Verkefnin eiga það sameiginlegt að stuðla að virkni, nýsköpun og jákvæðri þróun í samfélaginu og bera með sér þann kraft, frumkvæði og metnað sem sannarlega býr í samfélaginu á Stöðvarfirði.

Á hátíðinni kynnti Valborg Warén, verkefnisstjóri Sterks Stöðvarfjarðar, hverjir hlutu styrk að þessu sinni og hvatti íbúa og velunnara Stöðvarfjarðar til að nýta áfram þau tækifæri sem gefast, þróa hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd.

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, ávarpaði samkomuna, óskaði styrkþegum innilega til hamingju með verkefni sín og hvatti íbúa til dáða að halda áfram uppbyggingarstarfi á Stöðvarfirði. Hún sagði ánægjulegt að upplifa þann kraft sem einkennir samfélagið á Stöðvarfirði.

Að úthlutun lokinni var boðið upp á veitingar frá Brauðdögum Deighúsi og Kaffibrennslunni Kvörn. Það er ástæða til að óska styrkþegum og samfélaginu á Stöðvarfirði innilega til hamingju með kraftinn og eljusemina sem einkennt hefur þátttöku þeirra í verkefninu Sterkur Stöðvarfjörður.

Nafn styrkþega:                                        Heiti verkefnis:                                                          Styrkupphæð:

Hér má sjá myndir sem teknar voru á úthlutunarhátíðinni. Myndasmiður var Páll Baldursson.

Frá úthlutunarhátíð Frumkvæðissjóðs Sterks Stöðvarfjarðar í mars 2026.

Valborg Ösp Warén verkefnisstjóri ávarpar samkomuna.

Valborg Ösp verkefnisstjóri og Bryndís Fiona Ford framkvæmdastjóri Austurbrúar afhenda styrki úr Frumkvæðissjóði Sterks Stöðvarfjarðar fyrir hönd verkefnisstjórnar.

 

Verkefnið er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar, C.2, og markmið þess er að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Verkefnið byggir á samstarfi Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags, landshlutasamtaka og síðast en ekki síst íbúa hvers þátttökubyggðarlags. Því er einkum ætlað að styðja við frumkvæði og þátttöku íbúa til hagsbóta fyrir samfélagið í víðum skilningi,

 

 


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389