Fara í efni  

Fréttir

Lögfræðingur á fyrirtækjasviði Byggðastofnunar

Byggðastofnun óskar eftir metnaðarfullum og lausnamiðuðum lögfræðingi til starfa á fyrirtækjasviði stofnunarinnar á Sauðárkróki.
Starfið felur í sér þátttöku í fjölbreyttri útlánastarfsemi og atvinnuuppbyggingu um allt land í nánu samstarfi við öflugt fagfólk Byggðastofnunar.

Helstu verkefni

  • Yfirumsjón með skjalagerð vegna útlánastarfsemi, þar á meðal lánaskjala.
  • Lögfræðiráðgjöf til starfsmanna í tengslum við úrlausn lánamála og annarra verkefna stofnunarinnar.
  • Samskipti og samningagerð við erlenda samstarfsaðila.
  • Greining lánsumsókna og gerð tillagna fyrir lánanefnd eða stjórn.
  • Umsjón með verklagsreglum og innra regluverki stofnunarinnar.
  • Hlutverk persónuverndarfulltrúa.
  • Önnur verkefni í samráði við yfirmann.

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í lögfræði og mjög góð þekking á íslensku atvinnulífi og samfélagi.
  • Reynsla af starfi hjá fjármálafyrirtæki er æskileg, en ekki skilyrði.
  • Þekking og/eða reynsla af rekstri fyrirtækja er kostur, auk hæfni í lestri og greiningu ársreikninga og annarra fjárhagsupplýsinga.
  • Þekking á stjórnsýslurétti er nauðsynleg og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg.
  • Þekking á Evrópurétti er kostur.
  • Reynsla af greiningarvinnu og mjög góð greiningarhæfni.
  • Góð færni í rituðu og töluðu máli, bæði á íslensku og ensku.
  • Nákvæm og öguð vinnubrögð og hæfni til að vinna undir álagi, sjálfstætt og í teymi.
  • Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma.

Frekari upplýsingar um starfið

Byggðastofnun hefur það markmið að hafa innan sinna raða öflugan og jákvæðan hóp starfsmanna. Við bjóðum fjölskylduvænt starfsumhverfi og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi líkt og niðurstöður úr árlegri starfsmannakönnun Stofnun ársins bera með sér.

Starfið er staðsett á Sauðárkróki.

Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. 

Starfshlutfall er 100%

Þeir sem áhuga hafa á starfinu eru hvattir til að sækja um óháð kyni. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og staðfesting á prófgráðum ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur. 

Umsókn skal skilað í umsóknargátt sem finna má á heimasíðu Byggðastofnunar  www.byggðastofnun.is sem og nánari upplýsingar um stofnunina.  Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið liggur fyrir.

 

Umsóknarfrestur er til og með  30. janúar 2026.

Nánari upplýsingar veitir:
Hrund Pétursdóttir, forstöðumaður fyrirtækjasviðs
Sími: 455 5400
Netfang: hrund@byggdastofnun.is


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389