Fara í efni  

Fréttir

Mannfjöldaspá Byggðastofnunar 2021-2070 á sveitarfélagagrunni

Mannfjöldaspá Byggðastofnunar 2021-2070 á sveitarfélagagrunni hefur verið gefin út. Um er að ræða niðurbrot mannfjöldaspár Hagstofu Íslands á sveitarfélög og er þetta í þriðja sinn sem Byggðastofnun gefur út mannfjöldaspá með þessum hætti. 

Mannfjöldaspáin er gerð með mannfjöldalíkani Byggðastofnunar sem er slembilíkan og byggir á hlutlægum aðferðum og notast eingöngu við söguleg gögn, þ.e. engar forsendur eru fyrirfram gefnar og hvergi er notast við sérfræðiálit. Mannfjöldalíkan Byggðastofnunar byggir því á því „að fram haldi sem horfir“. Niðurstöður mannfjöldaspárinnar eru settar fram sem meðaltal og 80% spábil 10.000 slembiúrtaka líkansins og skalað við miðspá Hagstofu Íslands.

Opinber gögn frá Hagstofu Íslands um mannfjölda, búferlaflutninga, fæðingar og dauðsföll eru notuð sem inntaksgögn fyrir mannfjöldalíkanið.

Spásvæðin eru alls 129 og samanstanda af 69 sveitarfélögum og 60 öðrum spásvæðum sem skiptast  niður í sex mismunandi svæðaskipanir. Mannfjöldaspáin gefur fjölda fyrir hvern aldur frá 0-99 ára og safnflokk fyrir 100 ára og eldri.

Mannfjöldaspáin nær frá árinu 1. janúar 2021 til ársins 1. janúar 2070, eða 49 ár fram í tímann. Spáin gefur vísbendingar um að fólki haldi áfram að fjölga á höfuðborgarsvæðinu með stöðugri fækkun víða á landsbyggðunum. Hafa ber í huga að óvissa þessarar mannfjöldaspár er töluverð og þó að hún geti gefið þokkalega mynd af mannfjöldaþróun til skemmri tíma, t.d. 15 ára, verður að taka niðurstöðum til lengri tíma með fyrirvara.

Skýrslu um mannfjöldaspá Byggðastofnunar má nálgast hér að neðan í nokkrum hlutum. Innan skamms verður spáin gerð aðgengileg um vefviðmót á heimasíðu Byggðastofnunar. Einnig er hægt að óska eftir gögnum með því að senda beiðni á postur@byggdastofnun.is.

 Mannfjöldapá Byggðastofnunar:


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389