Fara í efni  

Fréttir

María Björk Ingvadóttir til liðs við Byggðastofnun

Byggðastofnun og María Björk Ingvadóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri N4, hafa gert með sér tímabundið samkomulag um aukna upplýsingamiðlun af verkefnum stofnunarinnar.  María Björk mun hafa yfirumsjón með heimasíðu og samfélagsmiðlum yfir samningstímann, fréttamiðlun til fjölmiðla og fræðslu til starfsfólks og stjórnenda í þeim tilgangi að auka sýnileika stofnunarinnar.

Arnar Már Elíasson forstjóri Byggðastofnunar segir stofnunina hafa nýlokið við umfangsmikla stefnumótun. ,,Hluti af nýrri stefnu snýr að þörf á auknum sýnileika og upplýsingamiðlun stofnunarinnar til þess að kynna þau þýðingarmiklu og fjölbreyttu verkefni sem hér eru unnin frekar fyrir landsmönnum öllum.  Það er einkar ánægjulegt að hafa náð samkomulagi við Maríu Björk í leið að því markmiði, en hún hefur gríðarlega reynslu og þekkingu af fjölbreyttum málefnum landsbyggðanna.”

Aðspurð sagðist María hlakka til samstarfs við frábæran hóp öflugra starfsmanna Byggðastofnunar. „Ég vona að saman getum við kynnt þau mikilvægu verkefni sem stofnuninni er treyst fyrir að sinna.“

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389